Landflótta norðurkóresk kona afhjúpar sannleikann um „hættulegasta 13 ára barn heims“
Landflótta norðurkóresk kona hefur miklar áhyggjur af að verið sé að undirbúa hina 13 ára Kim Jau Ae, sem er dóttir Kim Jong Un einræðisherra í …
Pressan
Laugardaginn 28. nóvember 2026 16:00
Kim Jau-Ae og Kim Jong-Un.
Landflótta norðurkóresk kona hefur miklar áhyggjur af að verið sé að undirbúa hina 13 ára Kim Jau Ae, sem er dóttir Kim Jong Un einræðisherra í Norður-Kóreu, til að vera arftaki hans.
Nýlega fóru falskir orðrómar af stað um að Kim Jong Un hefði látist og hófust þá miklar vangaveltur um hver myndi taka við af honum. Flestir hölluðust að því að Kim Jau Ae myndi gera það en hún er aðeins 13 ára og hefur verið sögð „hættulegasta 13 ára barn heims“ vegna þess valds sem hún mun hafa ef hún tekur við af föður sínum.
Hér á Vesturlöndum vitum við ekki mikið um þessa dularfullu unglingsstúlku og svo virðist sem margir landar hennar viti einnig lítið sem ekkert um hana eða fjölskyldu hennar sem ræður lögum og lofum í landinu.
Landflótta norðurkóresk kona ræddi við Associated Press og sagði að það að spyrja um Kim-fjölskylduna eða efast um að hún eigi að stýra landinu geti stefnt fólki í mikla hættu.
Konan flúði til Suður-Kóreu ásamt eiginmanni sínum þar sem þau vildu ekki að börn þeirra myndu alast upp í einræðisríki þar sem fjórða kynslóðin væri við völd. „Sem foreldrar töldum við að það besta sem við gætum gert fyrir börnin okkar væri að veita þeim frelsi,“ sagði hún.
Konan sagði að í hvert sinn sem Kim Jau Ae var sýnd í norðurkóreska ríkissjónvarpinu við hlið föður síns hafi það virkað á fólk eins og verið væri að senda því bein skilaboð um að hún muni taka við af honum.
Kim Jong Un tók við völdum þegar faðir hans lést 2011. Hann varð þar með þriðji ættliðurinn til að stýra þessu harðlokaða einræðisríki.
Talið er að Kim Jong Un eigi þrjú börn með eiginkonu sinni Ri Sol-ju að sögn BBC. Hin tvö hafa aldrei sést opinberlega og ekki er vitað hvað þau heita eða hversu gömul þau eru.
Svo undarlegt sem það er þá veit umheimurinn bara um Kim Jau Ae vegna þess að bandaríski körfuboltamaðurinn Dennis Rodman hélt á henni sem kornabarni þegar hann fór til Norður-Kóreu 2013.
Landflótta konan sagðist aldrei hafa heyrt um Kim Jau Ae fyrr en hún birtist við hlið föður sína í nóvember 2022 þegar langdrægu flugskeyti var skotið á loft.
Reuters hefur eftir Mason Richey, prófessor við Hankuk háskólann í Suður-Kóreu, það geti alveg eins verið að Kim Jau Ae sé uppáhaldsbarn Kim Jong Un en eftir því sem hún birtist oftar opinberlega, þá virðist líklegra að það sé verið að undirbúa hana undir að taka við völdum af föður sínum eða að minnsta kosti viðra þann möguleika.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗