Foreldrar kærðir eftir að „lítið samkvæmi“ 13 ára sona þeirra fór úr böndunum

Lisa og Aubrey Vaughan leyfðu 13 ára tvíburasonum sínum að halda smávegis samkvæmi fyrir skólafélaga sína. En þetta varð engin smávegis hittingur því mörg hundruð gestir komu í samkvæmið á hálfs milljarðs króna heimili fjölskyldunnar.

Tyla skýrir frá þessu og segir að á milli 100 og 300 unglingar hafi mætt í samkvæmið. Miðillinn segir að talið sé að 100 til 300 unglingar hafi mætt í samkvæmið.

Þetta átti bara að vera fámennt samkvæmi fyrir unglingana á heimilinu og bekkjarfélaga þeirra en varð á skömmum tíma villt samkvæmi sem mörg hundruð ungmenni sóttu, flugeldum var skotið á loft og talið er að ungmenni, undir lögaldri, hafi drukkið áfengi í samkvæminu.

Nú eiga foreldrar unglingsins kæru yfir höfði sér vegna málsins. Lögreglan í Fairfax County í Virginíu er að rannsaka mál þeirra Lisa Vaughan, 45 ára, og Aubrey Vaughan, 55 ára.

Lögreglan segir að hún hafi verið kölluð að húsinu um klukkan 21 í kjölfar margra tilkynninga um samkvæmi sem væri farið úr böndunum.

Þegar lögreglumenn komu á vettvang mætti þeim mikill mannfjöldi, flugeldar lýstu upp himininn og lögreglan þurfti að stilla til friðar og koma ró á mannskapinn. Hjónin eru grunuð um að hafa stuðlað að lögbrotum ungmenna undir lögaldri og fyrir að viðhalda aðstæðum sem ollu almennu ónæði.

Lögmaður hjónanna segir að þau hafi ekki getað séð fyrir að hlutirnir færu svona úr böndunum. Ætlunin hafi verið að halda samkvæmi fyrir 10 til 20 bekkjarfélaga tveggja 13 ára sona þeirra.

Tvíburasynirnir sendu boðskortin út í gegnum Snapchat og ekki leið á löngu áður en þau fóru á mikið flug á samfélagsmiðlinum og afleiðingin varð að mörg hundruð ungmenni mættu á svæðið.

Lögmaðurinn sagði að foreldrarnir hafi verið heima til að líta eftir öllu og hafi lagt bann við áfengisneyslu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读