Dæmd til að þola 100 vandarhögg fyrir að eignast barn utan hjónabands
Esther Wanja Muthoni, fertug kona frá Kenía, var nýlega dæmd til að þola 100 vandarhögg í Sádí-Arabíu. Ástæðan er að hún eignaðist barn utan hjó…
Pressan
Laugardaginn 28. nóvember 2026 14:30
Frá Sádi-Arabíu. Mynd/Getty
Esther Wanja Muthoni, fertug kona frá Kenía, var nýlega dæmd til að þola 100 vandarhögg í Sádí-Arabíu. Ástæðan er að hún eignaðist barn utan hjónabands.
Muthoni starfaði sem ráðskona og barnapía hjá fjölskyldu einni í Sádí-Arabíu. Hún er sögð hafa átt í skammvinnu ástarsambandi við egypskan mann og hafi orðið ólétt. Maðurinn er farinn úr landi.
Mál hennar kom upp þegar hún var flutt á sjúkrahús og það uppgötvaðist að hún var barnshafandi. Hún var þá handtekin og yfirheyrð.
Hún hefur nú reynt að komast úr landi, með eins árs son sinn, í eitt ár en hefur alltaf verið meinað að yfirgefa landið að sögn New York Times.
„Ég er svo hrædd. Ég held ekki að ég þoli þessi högg,“ sagði hún í viðtali í síðasta mánuði.
Það er ólöglegt að stunda kynlíf utan hjónabands í Sádí-Arabíu. Mannréttindasamtök hafa bent á að þetta bann komi miklu meira niður á konum því þær geti orðið óléttar og sitji frekar í súpunni en karlar.
Staðan er sérstaklega slæm fyrir farandverkafólk frá Afríku. The Times segir að mörg hundruð kenískar konur hafi verið barðar og óteljandi öðrum nauðgað á meðan þær störfuðu í Sádí-Arabíu.
Muthoni fékk að sögn ekki að snúa aftur í starfsmannaíbúð sína eftir að sonur hennar kom í heiminn. Hún neyddist til að búa á bensínstöð sem varð síðan samkomustaður fyrir mæður sem vonast til að verða sendar úr landi með börn sín.
Henni var útvegað húsnæði eftir að fjölmiðlar byrjuðu að fjalla um málið en var sagt að hún fengi ekki að fara úr landi á meðan mál hennar væri óafgreitt hjá dómstólum.
Hún fékk aðstoð túlks fyrir dómi en ekki verjanda að sögn The Times sem segir að venjulega fái fólk verjanda á kostnað hins opinbera.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗