Ferð á N1 reyndist Íslendingi heldur betur til lukku
Meðal vinningshafa í útdrætti gærkvöldsins í Euro-Jackpot var Íslendingur en hann keypti miðann hjá N1 á Ártúnshöfða.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.
Þar segir að heppinn miðaeigandi á Spáni hafi verið einn með 1. vinning og fái hann rúma 1,3 milljarð króna í vinning. Íslendingur, sem keypti sér miða á N1 á Ártúnshöfða í Reykjavík, sé meðal þeirra sex sem skiptu með sér 2. vinningi og fái þeir rúmar 38 milljónir króna hver. Af hinum miðunum hafi einn verið keyptur í Finnlandi og fjórir í Þýskalandi. Ellefu miðahafar hafi verið með 3. vinning og fái þeir rúmar 11,7 milljónir hver. Miðarnir voru keyptir í Lettlandi, Svíþjóð, Finnlandi, þrír í Póllandi og fimm í Þýskalandi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrættinum en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir 125 þúsund krónur hvor í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗