Hrönn ráðinn til starfa í Laugardalnum
KSÍ hefur ráðið Hrönn Guðmundsdóttur í starf markaðsfulltrúa hjá sambandinu.
Hrönn kemur til KSÍ með víðtæka reynslu af verkefnastjórnun, markaðsmálum, rekstri og þjónustu. Hún starfaði í níu ár hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ), meðal annars sem sviðsstjóri og sérfræðingur. Þar stýrði hún meðal annars landsverkefnum á sviði hreyfingar og kom að markaðsmálum, áætlanagerð og samstarfi við fjölbreyttan hóp hagaðila. Hrönn hefur einnig starfað sem verkefnastjóri hjá GoNorth og við markaðs- og þjónustustörf hjá Fosshótelum.
Í starfi markaðsfulltrúa mun Hrönn sinna fjölbreyttum verkefnum á markaðssviði KSÍ. Þar má meðal annars nefna verkefni tengd samstarfsaðilum og virkjun samstarfs, markaðsherferðum, miðamálum, landsleikjum og viðburðum auk gagnaöflunar, greiningar og eftirfylgni.
Mikill áhugi var á starfinu og bárust hátt í 70 umsóknir. Umsækjendahópurinn var bæði stór og fjölbreyttur, með fólki úr ólíkum áttum sem hafði að baki fjölbreytta starfsreynslu og menntun. Margir umsækjenda höfðu töluverða reynslu af markaðsmálum, verkefnastjórnun, viðburðum og störfum tengdum íþróttahreyfingunni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗