Fann ástina á ný átta árum eftir sviplegt andlát eiginmannsins
Emma Samuel, ekkja fyrrum knattspyrnumannsins Jlloyd Samuel, hefur fundið ástina á ný, átta árum eftir að eiginmaður hennar lést í hörmulegu bílslysi.
Samuel, sem lék um árabil í ensku úrvalsdeildinni með Aston Villa og Bolton, var aðeins 37 ára gamall þegar hann lést í bílslysi í Cheshire í maí árið 2018.
Emma, sem er 46 ára gömul, hefur undanfarin átta ár einbeitt sér að því að ala upp börnin þrjú sem þau Samuel eignuðust saman.
Hún tók fyrr á þessu ári þátt í raunveruleikaþáttunum Married at First Sight UK þar sem hún kynntist Luke Newell.
„Hann færði mér þann frið sem mig hafði vantað síðan ég missti Jlloyd. Hann hafði sjálfur misst systur sína og skildi því sorg mína og barnanna. Við hjálpuðum hvort öðru,“ sagði Emma í samtali við Daily Star.
„Luke er sannkallaður herramaður sem lét mér líða öruggri.“
Börnin þrjú voru viðstödd þegar Emma gekk að eiga Luke í þáttunum en óvíst er hvort áhorfendur fái nokkurn tímann að sjá ástarsögu þeirra. Sjónvarpsstöðin Channel 4 tók ákvörðun um að hætta framleiðslu þáttanna fyrr í þessum mánuði.
„Ég var týnd og mér leið mjög illa áður en ég tók þátt. Börnin mín voru að verða fullorðin og flytja að heiman. Þetta er eitt það besta sem ég hef gert fyrir sjálfa mig.“
Börn Emmu og Jlloyd hafa nú fetað sínar eigin brautir en einn sona þeirra er atvinnumaður í knattspyrnu.
Emma hyggst einnig stofna fyrirtæki sem ætlað er að styðja við konur sem glíma við sorg og vilja byggja upp líf sitt á ný eftir miklar breytingar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗