Mokhagnaður hjá Jysk

Hagnaður dönsku verslunarkeðjunnar Jysk jókst um meira en 30% á síðasta fjárhagsári. Velta fyrirtækisins nam 52,3 milljörðum danskra króna og he…

Jysk var áður Rúmfatalagerinn.

Jysk var áður Rúmfatalagerinn.

Hagnaður dönsku verslunarkeðjunnar Jysk jókst um meira en 30% á síðasta fjárhagsári. Velta fyrirtækisins nam 52,3 milljörðum danskra króna og hefur aldrei verið meiri. Rekstrarhagnaður Jysk (EBIT) nam 7,3 milljörðum danskra króna á síðasta fjárhagsári, sem jafngildir um 134 milljörðum íslenskra króna. 

Frá þessu greinir danska dagblaðið Berlingske.

Jysk, sem sérhæfir sig í sölu á húsgögnum, dýnum, sængurfatnaði og öðrum heimilisvörum, opnaði 168 nýjar verslanir á fjárhagsárinu 2025–2026.

Um er að ræða eitt mesta vaxtarskeið í sögu verslunarkeðjunnar á einu fjárhagsári.

Vöxturinn kemur á sama tíma og neytendur víða í Evrópu hafa haldið að sér höndum í innkaupum og smásalar þurft að glíma við háan launa-, húsnæðis- og flutningskostnað.

Hagnaðist um tæpa 1,5 milljarða hér á landi

Jysk hefur einnig verið í mikilli sókn hér á landi en verslanir keðjunnar, sem áður báru nafn Rúmfatalagersins, eru reknar með sérleyfi.

Rúmfatalagerinn ehf. hagnaðist um tæplega 1,5 milljarða króna á rekstrarárinu sem lauk í febrúar 2025, samkvæmt ársreikningsupplýsingum á vef Ríkisskattstjóra. 

Velta félagsins nam rúmum níu milljörðum króna og jókst hagnaður þess um 90 milljónir króna milli ára.

Opna nýja verslun á næsta ári

Í ágúst síðastliðnum tók fyrirtækið í notkun nýtt, 7.900 fermetra vöruhús í Korputúni í Mosfellsbæ. Með tilkomu þess þrefaldaðist fjöldi vörubrettaplássa, úr fjögur þúsund í tólf þúsund.

Nýtt atvinnusvæði Reita við Vesturlandsveg er staðsett austan við Korputorg og ber nafnið Korputún.

Fyrirtækið rekur nú sjö verslanir hér á landi og stefnir að opnun nýrrar verslunar í Korputúni í byrjun næsta árs.

Rúmfatalagerinn hóf starfsemi hér á landi árið 1987.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读