Skipverji segir björgunarbáta hafa verið nýskoðaða

„Við horfðum á eftir gúmmíbátnum fara. Gálginn neglir honum út og hann springur út. Báturinn var uppblásinn fyrir framan skipið. Ég greip í fang…

Jökull ÞH299 á siglingu. Mynd úr safni.

Jökull ÞH299 á siglingu. Mynd úr safni. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Skipverji sem var um borð þegar Jökull ÞH sökk á miðvikudag segist hafa sótt öryggisbúnað skipsins úr skoðun hjá vottaðri skoðunarstöð á Akureyri undir lok október.

Tímasetning skoðunarinnar er staðfest af öðrum heimildarmanni mbl.is.

Við skoðunina voru meðal annars kannaðir tveir gúmmíbjörgunarbátar sem að sögn skipverjans virkuðu hvorugur sem skyldi þegar á reyndi.

Skotbúnaður virkaði ekki sem skyldi í öðru tilvikinu og festist báturinn á milli handriðs og brúar án þess að hægt væri að hnika honum.

Hinn báturinn skaust út eins og hann átti að gera. Skipverjinn segist hafa gripið í fangalínuna, sem er um 25 metra löng og á að vera föst við bátinn, en ekki hafi viljað betur til en svo að hún slitnaði „við minnsta átak“.

Með gilt haffærisskírteini

Jökull ÞH var með gilt haffærisskírteini til 4. desember samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu.

Til að fá haffærisskírteini endurnýjað þurfa skip að standast lögbundnar skoðanir, meðal annars á skipsbol, vél- og rafbúnaði, fjarskiptabúnaði og öryggis- og björgunarbúnaði.

Skipverjinn segist hafa farið með öryggisbúnað í skoðun og sótt hann einnig. 

„Ég fór með búnaðinn, galla, björgunarbáta, slökkvitæki, reykköfunarbúnað og fleira í skoðun. Svo var hringt tveimur dögum síðar og við fórum og sóttum búnaðinn og ekkert mál gert úr því,“ segir skipverjinn, sem kýs að koma ekki fram undir nafni.

Verulegur ágalli

Jökull ÞH var búinn þremur björgunarbátum; tveimur gúmmíbjörgunarbátum og einum léttabát.

Skipverjinn segir að í fyrstu hafi skipverjarnir virkjað sleppibúnað annars gúmmíbjörgunarbátsins og að báturinn hafi skotist út eins og hann átti að gera.

Björgunarbáturinn hafi legið fyrir framan skipið en fangalínan ekki haldið.

„Við horfðum á eftir gúmmíbátnum fara. Gálginn neglir honum út og hann springur út. Báturinn var uppblásinn fyrir framan skipið. Ég greip í fangalínuna en hún slitnaði svo við minnsta átak,“ segir hann.

Hinn báturinn festist aftur á móti á milli handriðs og brúar og var „pikkfastur“.

„Það var verulegur ágalli í þessum búnaði,“ fullyrðir skipverjinn.

Náðu ekki að losa léttabátinn

Hann segir að skipverjar hafi einnig reynt að losa léttabátinn.

Það hafi tekist að hluta en skipið hafi hallað þannig að ógjörningur hafi reynst að losa hann af sleppikrók.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读