Millifærslur barna geta bent til tengsla við glæpagengi
Yfirvöld í Svíþjóð hafa varað bæði foreldra og skóla við og hvatt þá til að hafa reglulegt eftirlit með notkun barna á greiðsluforritum, í Svíþj…
Yfirvöld í Svíþjóð hafa varað bæði foreldra og skóla við og hvatt þá til að hafa reglulegt eftirlit með notkun barna á greiðsluforritum, í Svíþjóð er forritið Swish langalgengast. Óvenjuleg notkun slíkra forrita geti verið vísbending um að ólögráða barn hafi verið fengið til vinnu hjá glæpagengjum við hin ýmsu störf.
Samkvæmt umfjöllun Aftonbladet er eftirlit með færslum barna mjög mikilvægt, millifærslur gangi oft á milli barna í dag þar sem allir hafi nú undir höndum snjallsíma, færslur sem geti virst saklausar á bankayfirliti geti átt sér alvarlegri sögu að baki.
Margvíslegar vísbendingar
Lögregluyfirvöld í Svíþjóð vara til dæmis við því ef barn hættir að biðja um peninga heima, er skyndilega með vasapeninga eða verður dulúðugt um samskipti sín og ferðir. Þá gæti umtalað barn nú þegar verið að vinna fyrir glæpagengi.
Slík vinna getur hafist þannig að barn er beðið um að flytja hlut á milli staða, koma skilaboðum áleiðis eða standa vörð um eitthvað. Verkefnum sem kostar lítið að útvista og auðvelt er að neita síðar.
Sýnilegra en torstöðvanlegra
Stafræna slóðin gerir ferlið sýnilegra en gamla reiðufjárhagkerfið gerði, en þó ekki auðveldara að stöðva það.
Stafræn gögn birtast ekki fyrr en barnið hefur þegar verið dregið inn í heim sem erfitt getur reynst að komast úr. Þá hafa gengi oft þegar byggt upp skuld eða hollustu við einstaklinginn og komist að því hve langt er hægt að ýta viðkomandi.
Eftir standa skólar, foreldrar, lögregla og félagsþjónusta sem reyna að greina umskipti barnanna frá lauslegum tengslum yfir í glæpsamlega tælingu.
Vísbendingarnar geta verið hversdagslegar: nýr og eldri vinur, óútskýrðar leigubílaferðir, annar sími, reiðufé eða merkjaföt umfram fjárhag fjölskyldunnar, skyndileg fjarvera eða óvenjuleg hollusta við fólk utan heimilisins.
Ekkert af ofantöldu sannar eitt og sér að glæpur hafi verið framinn, en samanlagt lýsa vísbendingar sem slíkar vinnumarkaði á neðsta þrepi glæpastarfsemi gengja, þar sem börn eru notuð vegna þess að þau eru ódýrari í rekstri, auðveldara er að losa sig við þau og oft eru þau undir þeim aldri þar sem réttarkerfið getur beitt þungum refsingum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗