Vilhelm Jónsson skrifar: Krónan má ekki deyja – þjóðin má fara á hausinn
Á Íslandi hefur legið fárveikur sjúklingur á gjörgæslu áratugum saman. Læknarnir eru enn bjartsýnir, bankarnir birta feitar afkomutölur en aðstandendurnir eru að fara á hausinn.
Sjúklingurinn heitir íslenska krónan.
Blóðþrýstingurinn fer reglulega upp fyrir hættumörk. Sjúklingurinn er þá lagður í rúmið, vafinn í bómull og honum bönnuð öll áreynsla. Þegar blóðþrýstingurinn lækkar lítillega hrósa læknarnir sjálfum sér fyrir árangurinn og heimila sjúklingnum að stíga fram úr rúminu.
Blóðþrýstingurinn rýkur samstundis upp.
Þá hefst sama meðferðin á ný, hvað sem fórnarkostnaðinum líður. Þótt einn og einn aðstandandi falli frá virðist það ekki gefa læknunum tilefni til að endurskoða meðferðina.
Sjúklingurinn má ekki deyja þótt aðstandendurnir fari á hausinn.
Aukaverkanirnar eru aukaatriði
Seðlabankinn hefur það yfirlýsta markmið að koma verðbólgunni niður í 2,5 prósent. Til þess er meðal annars beitt háum vöxtum sem leggjast af miklum þunga á skuldsett heimili, fyrirtæki og sveitarfélög.
Ríkisstjórnin virðist horfa á framvinduna vanmáttaraugum í þeirri von að ástandið reddist.
En hvað kostar meðferðin?
Hversu mörg fyrirtæki þurfa að leggja upp laupana, hversu margar fjölskyldur þurfa að missa heimili sín og hversu mikil verðmætasköpun þarf að fara forgörðum áður en menn fara að efast um ágæti hennar?
Læknarnir mæla árangurinn í prósentum. Aðstandendurnir mæla hann í afborgunum, töpuðum atvinnutækifærum og svefnlausum nóttum.
Atvinnulífið í öndunarvél
Þegar fjármagnskostnaður verður svo mikill að fjárfestingar standa ekki lengur undir sér eru framkvæmdir stöðvaðar, nýsköpun frestað og fyrirhuguð störf verða aldrei til.
Fyrirtæki sem annars gætu verið arðbær þurfa að verja fjármunum sínum í vaxtagreiðslur í stað þess að byggja upp starfsemina.
Það getur tekið áratugi að byggja upp öflugt fyrirtæki en mun skemmri tíma að leggja það í rúst.
Sérþekking, reynsla, viðskiptasambönd og atvinnutækifæri verða ekki endurheimt með einni tilkynningu um vaxtalækkun.
Á sama tíma þurfa íslensk fyrirtæki að keppa við erlend fyrirtæki sem búa mörg hver við mun hagstæðari fjármögnunarkjör.
Hvaðan eiga skatttekjur framtíðarinnar að koma ef grafið er undan þeirri verðmætasköpun sem á að standa undir þeim?
Það verður ekki endalaust hægt að skattleggja verðmæti sem aldrei verða til.
Hrægammaskeiðið
Það er ekki öllum til ama þegar harðnar á dalnum.
Þegar skuldsett fyrirtæki komast í þrot og einstaklingar neyðast til að selja eignir sínar skapast kjöraðstæður fyrir þá sem eiga digra sjóði.
Ævistarf eins manns getur orðið kostakaup annars.
Þannig getur auður færst milli manna án þess að nokkur ný verðmæti verði til.
Það væri fróðlegt að fá heildarúttekt á slíkum eignatilfærslum í kjölfar þeirra efnahagsáfalla sem íslenska þjóðin hefur mátt þola síðustu áratugi.
Það sem sumir kalla efnahagskreppu kalla aðrir kauptækifæri.
Matarmiði í dýrustu búðinni
Við gerð kjarasamninganna árið 2024 voru húsnæðisúrræði einn veigamesti þátturinn í aðkomu stjórnvalda.
En hvernig var hugsað fyrir hagsmunum þeirra sem minna mega sín?
Í stað þess að veita efnaminni fjölskyldum aukið svigrúm til kaupa á hagstæðu eldra húsnæði var áfram lögð áhersla á hlutdeildarlán til kaupa á nýbyggingum. HMS var falið að annast framkvæmdina með þeim takmörkunum sem regluverkið kvað á um.
Að mínu mati hefur framkvæmdin einkennst af þröngsýni og skorti á gagnsæi.
Verkalýðsforystan verður einnig að axla sinn hluta ábyrgðarinnar. Hvers vegna gerði hún ekki ríkari kröfur um valfrelsi efnaminni fjölskyldna við gerð kjarasamninganna?
Það er álíka skynsamlegt að beina efnaminni fjölskyldum í dýrari nýbyggingar og að úthluta þeim matarmiðum með því skilyrði að þeir séu nýttir í dýrustu matvöruverslun bæjarins.
Hverra hagsmuna er verið að gæta? Fjölskyldnanna eða þeirra sem þurfa að selja nýbyggingarnar?
Það er ekki nóg að hjálpa fólki að eignast þak yfir höfuðið. Það þarf líka að gera því kleift að halda því.
Færri tær á Tenerife
Greiningardeildir bankanna og aðrir sérfræðingar hafa árum saman boðað betri tíð. Það þurfi aðeins meiri þolinmæði, meira aðhald og minni neyslu.
Færri tær á Tenerife og þá ætti allt að fara að lagast.
Batinn er alltaf handan við hornið.
Það er orðið ansi langt horn.
Á meðan getur íslenskur skuldari greitt skilvíslega af verðtryggðu húsnæðisláni sínu og samt horft upp á höfuðstól skuldarinnar hækka.
Bankarnir skila hagnaði og ríkissjóður hefur í gegnum árin notið myndarlegra arðgreiðslna af eignarhlutum sínum í bankakerfinu.
Ríkisvaldið er þannig ekki aðeins þátttakandi í kerfinu heldur einnig þiggjandi arðs af því.
Skyldi það hafa einhver áhrif á umbótaviljann?
Bráðabirgðaástand í tæpa hálfa öld
Árið 1979 var almenn verðtrygging lánsfjár lögfest til að verja fjármagn gegn verðbólgunni.
Síðan eru liðin 47 ár.
Heilu kynslóðirnar hafa fæðst, alist upp og eignast börn og barnabörn við þetta lánakerfi.
Verðbólguhrinurnar hafa komið og farið. Ríkisstjórnir hafa tekið við hver af annarri og nýjar hagspár tekið við af þeim sem ekki gengu eftir.
Í stað þess að ráða niðurlögum verðbólgunnar var komið á kerfi sem gerði fjármagnseigendum kleift að verjast afleiðingum hennar.
Skuldarinn fékk reikninginn.
Hversu lengi þarf vandamál að vara áður en stjórnmálamenn hætta að líta á það sem tímabundið ástand?
Dýrkeypt kennslustund
Bankahrunið árið 2008 var ekki náttúruhamfarir.
Alþjóðleg fjármálakreppa afhjúpaði íslenskt fjármálakerfi sem hafði vaxið langt umfram getu þjóðarbúsins til að standa undir því. Eðlilegt aðhald brást og grundvallarreglur um heilbrigðan fjármálarekstur voru virtar að vettugi.
Krónan féll, skuldir þyngdust, fyrirtæki urðu gjaldþrota og þjóðin sat uppi með gjaldeyrishöft um árabil.
Það var ekki tilviljun hversu berskjaldað íslenska þjóðarbúið var þegar alþjóðlega fjármálakreppan skall á.
Þjóðin fékk dýrkeypta kennslustund í efnahagsmálum.
Átján árum síðar er enn verið að glíma við þráláta verðbólgu, háa vexti og verðtryggingu.
Lærðum við eitthvað af hruninu eða lærðum við einfaldlega að lifa með afleiðingunum?
Harmafregnir frá sjúkrabeðinu
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og einn helsti málsvari íslenskrar verkalýðshreyfingar, hefur ítrekað lýst sorg sinni, vonbrigðum og gremju vegna framvindu efnahags- og kjaramála.
Sorgarefnin eru sannarlega næg.
Íslenskt launafólk þarf ekki aðeins málsvara sem lýsir sorg sinni vegna framvindu efnahagsmála heldur einnig svör við því hvernig eigi að koma í veg fyrir að sama sagan endurtaki sig.
Samúð greiðir ekki af húsnæðislánum.
Það er takmarkaður sigur að semja um hærri laun við annað borðið ef umsamin kjarabót er hirt við hitt.
Verkalýðsforystan þarf að gera þjóðinni grein fyrir því hvaða framtíð hún sér fyrir sér í gjaldmiðilsmálum.
Er hún komin að sjúkrabeðinu til að gæta hagsmuna sjúklingsins eða aðstandendanna?
Fæðuöryggi þeirra sem hafa efni á að borða
Að mínu mati skilaði hræðsluáróður elítunnar í sumar tilætluðum árangri.
Þjóðinni var talin trú um að fullveldi hennar, sjávarauðlindir og jafnvel fæðuöryggi væru í húfi ef teknar yrðu upp aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Það þurfti ekki einu sinni að liggja fyrir samningur til að mála skrattann á vegginn.
En hvað með efnahagslegt öryggi íslenskra heimila og samkeppnishæfni atvinnulífsins?
Hvers virði er fæðuöryggið þeim sem hafa ekki efni á að kaupa matinn?
Enginn gjaldmiðill leysir allan efnahagsvanda þjóðar. En það er fráleitt að undanskilja sjálfan gjaldmiðilinn þegar leitað er skýringa á áratugalöngum efnahagslegum óstöðugleika.
Krónan er gjaldmiðill, ekki trúarbrögð.
Fimmta árstíðin
Íslendingar hafa fundið upp fimmtu árstíðina.
Hún heitir seinna.
Þá á að borga brúsann.
Ríkissjóður tekur lán, sveitarfélög skuldsetja sig, fyrirtæki endurfjármagna skuldir og heimilin lengja lánstímann.
Vandamálin eru færð til í bókhaldinu og gjalddögum frestað. Stjórnmálamenn geta haldið áfram að lofa og þjóðin haldið áfram að vona.
En vaxtareikningurinn tekur sér ekki frí.
Við ætlumst síðan til þess að börnin okkar og barnabörnin greiði fyrir það sem við höfðum hvorki ráðdeild né kjark til að gera upp sjálf.
Hverjum er verið að bjarga?
Það er kominn tími til að gera upp kostnað þjóðarinnar við áratugalangan efnahagslegan óstöðugleika.
Ekki aðeins í prósentum og hagfræðilegum stærðum heldur einnig í glötuðum eignum, gjaldþrotum, töpuðum atvinnutækifærum og skertum lífsgæðum.
Stjórnvöld þurfa að gera þjóðinni grein fyrir raunhæfum valkostum í gjaldmiðilsmálum og kostnaði þess að halda óbreyttu kerfi.
Þjóðin á ekki að þurfa að fórna fjárhagslegu öryggi sínu til að halda lífinu í gjaldmiðlinum.
Atvinnulífið á ekki að vera tilraunastofa fyrir endalausa vaxtakúra.
Gjaldmiðillinn á að þjóna þjóðinni, ekki þjóðin gjaldmiðlinum.
Kannski er kominn tími til að spyrja læknana hvort þeir séu að bjarga réttum sjúklingi.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗