Jólamarengs með vanilluskyrsrjóma og hönnunarlakkrís
Punkturinn yfir i-ið er að setja tíu LAKRIDS BY BÜLOW-kúlur ofan á kökuna.
Matur | Morgunblaðið | 28.11.2026 | 15:00
LAKRIDS BY BÜLOW-kúlur eru mikið góðgæti og þær eru frábærar sem kökuskraut því þær gefa gott bragð í leiðinni. Lakkrísinn fæst í Epal. Morgunblaðið/Marta María
Ef þig langar í eitthvað ómótstæðilegt í eftirrétt þá ættir þú að prófa að baka þessa marengsköku.
Jólin eru tíminn þar sem við getum leyft okkur örlítið meira en venjulega og þá er afbragðshugmynd að baka marengsköku með vanilluskyrsrjóma, lakkrískúlum og sætu pekanhnetukurli. Þessi kaka varð til í fyrstu haustlægðinni og endaði í saumaklúbbi í Mosfellsbæ þar sem hún fékk súpergóða einkunn hjá fagkonum sem elska góðan mat og gómsæta eftirrétti.
Jólamarengs
LAKRIDS BY BÜLOW-kúlur eru mikið góðgæti og þær eru frábærar sem kökuskraut því þær gefa gott bragð í leiðinni. Lakkrísinn fæst í Epal.
Botn
- 4 eggjahvítur
- 3 dl sykur
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 msk. eplaedik
Aðferð:
- Eggjahvítur eru stífþeyttar. Þá er sykrinum bætt út í.
- Þegar blandan er orðin stíf er lyftiduftinu og eplaedikinu blandað út í.
- Deiginu er skipt í tvennt og það sett á tvær bökunarplötur.
- Hægt er að teikna hring á bökunarpappír til að hafa báða botnana jafn stóra.
- Svo er deigið sett fallega á bökunarpappírinn.
- Ofninn er stilltur á 150° og eru botnarnir bakaðir í korter á þeim hita. Þá er hitinn lækkaður niður í 100° og botnarnir bakaðir í klukkustund til viðbótar.
- Best er að gera þetta að kvöldlagi og láta botnana kólna inni í ofni yfir nótt. Þá verður marengsinn svo gott sem fullkominn.
Fylling
- 4 dl rjómi
- 2 dl vanilluskyr
- 2 tsk. vanilluduft
Aðferð:
- Þeytið rjómann þannig að hann verði akkúrat kökuhæfur.
- Ekki of mjúkur og ekki þeyttur í smjör.
- Þegar rjóminn er fullþeyttur er vanilluskyrinu bætt út í ásamt vanilluduftinu.
- Þegar botnarnir eru búnir að kúra inni í bakaraofni yfir nótt og eru við stofuhita þá er vanilluskyrsrjóminn settur á milli og ofan á kökuna.
Pekanhnetukurl
- 2 dl pekanhnetur
- 1 msk. sykur
Aðferð:
- Þurrristið pekanhnetur á steypujárnspönnu og hellið sykrinum yfir.
- Um leið og sykurinn bráðnar á pönnunni og pekanhneturnar fara að brúnast skiptir máli að passa upp á það að þær brenni alls ekki.
- Þegar þær eru orðnar stökkar eru þær settar á smjörpappír og látnar kólna.
- Þegar þær eru orðnar kaldar eru þær saxaðar niður og settar ofan á rjómann á marengskökunni.
Punkturinn yfir i-ið
- Takið um það bil 10 LAKRIDS BY BÜLOW-kúlur að eigin vali og skerið í tvennt.
- Hér urðu Classic Caramel-kúlur fyrir valinu en þær sameina sætan og mjúkan lakkrís með karamellukeim og stökkum sjávarsaltflögum.
- Kúlunum er raðað ofan á kökuna og ef brotnar upp úr kúlunum þegar þær eru skornar í sundur þá er það allt í lagi.
- Þú þarft að passa að ekkert fari til spillis og því skaltu nota allt sem brotnar upp úr kúlunum og setja ofan á kökurnar.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/37/1693730.jpg)
