Svona heldurðu þakkargjörðarveislu með vinum
Góður matur, fallega lagt borð og vinir sem leggja allir sitt af mörkum. Það þarf ekki meira til að skapa kvöld sem fólk minnist með hlýju. Ljósmynd/A.C./Unsplash
Þakkargjörðin snýst gjarnan um matinn, en í þakkargjörðarveislu með vinum (e. friendsgiving) er samveran í aðalhlutverki. Allir leggja eitthvað til veislunnar, hvort sem það er réttur á borðið, drykkur í glösin, blóm eða tónlist sem setur svip á kvöldið. Hér höfum við tekið saman uppskriftir sem henta sérstaklega vel í slíka veislu og góð ráð um hvernig skapa má fallega og notalega umgjörð um kvöldið.
Í slíkri veislu þarf gestgjafinn ekki að standa einn að öllum undirbúningnum. Með því að skipta með sér verkum gefst meiri tími til að njóta kvöldsins saman. Maturinn má vera rausnarlegur og umgjörðin falleg, en mestu skiptir að öllum líði vel og finnist þeir velkomnir.
Matseðill sem gefur gestunum svigrúm
Ef þig langar að halda þakkargjörðarveislu fyrir vinina mælum við með því að þú veljir nokkra rétti sem fara vel saman og látir gestina vita hvað verður á boðstólum. Þannig geta þeir bætt við meðlæti, forrétti eða eftirrétti sem fellur að heildinni.
Það getur einnig verið ótrúlega gaman að gera engin plön og bjóða bara öllum að koma með það sem þeir eru bestir í. Þá er samt gott að leggja til gott prótín eða aðalrétt.
Pláss fyrir alla
Gott sæti við borðið er hluti af gestrisninni. Fellistólar geta komið sér vel þegar gestum fjölgar, en gættu þess að allir sitji þægilega og hafi nægt olnbogarými.
Borðskipan getur líka hjálpað til við að koma samræðunum af stað. Leiddu saman fólk sem gæti haft gaman af að kynnast og hafðu leiðina inn í eldhús greiða. Einföld nafnspjöld setja fallegan svip á borðið og sýna gestunum að búið sé að hugsa fyrir komu þeirra. Skrifaðu nöfnin beggja vegna svo auðveldara sé að læra nöfn nýrra borðfélaga.
Lýsingin skapar stemninguna
Mjúk birta frá borðlömpum og kertum gerir mikið fyrir andrúmsloftið. Deyfðu loftljósin og dreifðu hlýlegri birtu um rýmið.
Falleg umgjörð þarf ekki að vera flókin. Dúkur, blóm og kertaljós geta nægt til að gera borðið hátíðlegt. Þegar gestirnir setjast svo niður fær samveran að ráða ferðinni.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗