Byrjaðu daginn eins og hertogaynjan
Hertogaynjan af Sussex, Meghan Markle, nýtur sín í eldhúsinu og hefur tekið á móti góðum gestum í þáttum sínum With Love, Meghan. Þar hafa meðal annars leikkonan Mindy Kaling, matreiðslumaðurinn Roy Choi, hlaðvarpsstjarnan Jay Shetty og fyrirsætan og athafnakonan Chrissy Teigen komið í heimsókn, eldað með Markle og deilt eldhúsráðum og uppskriftum.
Markle er mikill matgæðingur, eins og glöggt má sjá í þáttunum, og þeytingar eru í miklu uppáhaldi hjá henni. Hún byrjar hvern dag á einum slíkum og heldur sérstaklega upp á þennan, sem hefur hlotið heitið The Meghan Markle Smoothie og gefur henni að eigin sögn góðan orkuskammt.
Uppáhaldsþeytingur Meghan Markle
- 30 g prótínduft að eigin vali
- ½ bolli bláber, frosin
- 1 tsk. kanill
- ½ bolli möndlumjólk
- ½ bolli kókosvatn
- 1 tsk. chiafræ
Aðferð
- Setjið öll hráefnin í blandara og blandið vel saman.
- Hellið í glas og njótið.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗