„Það þarf enginn að vera hræddur við að elda hjörtu og lifur“

Rata lambalifur og lambahjörtu reglulega á matarborðið á þínu heimili?

Lambahjörtu og lambalifur eru í aðalhlutverki í nýju myndbandi frá Íslensku lambakjöti sem sjá má hér á mbl.is. Þar eldar Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumeistari á Ylju við Laugarás Lagoon, einfalda rétti úr innmat fyrir sauðfjárbændurna Rúnar og Birtu Berg á Vatnsleysu, skammt frá Reykholti í Biskupstungum.

Rúnar og Birta tóku fyrst fé árið 2009. Það sem byrjaði smátt vatt fljótt upp á sig og í dag eru um 700 fjár á Vatnsleysu. Þau þekkja lambakjötið því vel, en í myndbandinu fá þau að kynnast hráefninu frá nýrri hlið.

Bógurinn betri en lærið

Þau hjónin eru með sína uppáhaldsbita á hreinu. Rúnar segir frampartinn safaríkari og bóginn betri en lærið. Gísli nefnir lambasíðu með BBQ-sósu, sem er vinsælasti rétturinn á veitingastað sínum Næs í Vestmannaeyjum. Hann segir fjölbreytnina það skemmtilegasta við lambið; að nýta hvern einasta hluta þess sem best.

Gleymdu bitarnir

Hjörtu og lifur rötuðu áður reglulega á matarborð Íslendinga en sjást sjaldnar á diskum landsmanna í dag. Gísli vill breyta því og eldaði tvo forrétti þar sem innmaturinn fær að njóta sín.

Lifrina léttsaltar hann fyrst til að draga úr henni vökva, sem gefur betri áferð. Síðan er henni velt upp úr hveiti og hún steikt á pönnu, rétt bleik í miðjunni. Á sömu pönnu eru sveppir og laukur steiktir með hvítlauk og rjóma. Lifrin er skorin í svipaða bitastærð og sveppirnir og allt borið fram á ristuðu súrdeigsbrauði.

Hjörtun kalla á aðeins meiri undirbúning. Gísli sker frá þeim fitu og sinar svo þau verði hæf til eldunar og leggur þau svo í lög með sojasósu og hvítlauk. Þau eru snöggsteikt á heitri pönnu og borin fram með bökuðum rauðrófum, rauðrófugljáa og piparrótarkremi.

Veislumatur fyrir lítið

Innmatur er ódýrt hráefni. Allt hráefnið í báða réttina kostaði í kringum 3.000 krónur og voru rjóminn og smjörið dýrasti hlutinn. Það er sanngjarnt verð fyrir tvo forrétti sem myndu sóma sér á hvaða veitingastað sem er.

Bændur og kokkar við sama borð

Í myndbandinu mætast þeir sem ala lambið og sá sem matreiðir það. Bændurnir þekkja hráefnið frá fyrstu hendi og kokkurinn sýnir hvað hægt er að gera úr hlutum sem oft verða út undan. Slíkt samtal skilar sér í betri nýtingu og meiri virðingu fyrir hráefninu.

Sló í gegn

Maturinn sló í gegn hjá Rúnari og Birtu, og það þótt Birta sé alla jafna ekki mikið fyrir lifur. Hún lýsir réttunum sem nýjum og mjög skemmtilegum, með fersku og léttu bragði.

„Það þarf enginn að vera hræddur við að elda hjörtu og lifur,“ segir Rúnar. Gísli tekur í sama streng og kallar réttina einfaldlega herramannsmat.

Hér eru uppskriftir Gísla að báðum réttunum: 

Lambalifur á ristuðu súrdeigsbrauði með rjómalöguðum sveppum

Fyrir 4

Lambalifur er frábært hráefni sem þarf ekki mikið til að njóta sín. Hér er hún léttsteikt í smjöri og borin fram á ristuðu súrdeigsbrauði með rjómalöguðum sveppum, hvítlauk og blöðrukáli. 

Hráefni

  • 500 g lambalifur
  • 4 vænar sneiðar af súrdeigsbrauði
  • 250 g portobellosveppir
  • 2 skalottlaukar
  • 2 hvítlauksrif
  • 100 g blöðrukál
  • 200 ml. rjómi
  • Smjör til steikingar
  • Salt og nýmalaður svartur pipar

Aðferð

  1. Hreinsið lambalifrina og skerið í hæfilega þykkar sneiðar. Saltið létt og látið standa í smástund áður en hún er steikt. 
  2. Hitið pönnu vel og bræðið smjör á henni. Steikið lifrina á báðum hliðum þar til hún hefur fengið fallegan steikingarlit en er enn mjúk að innan. Takið af pönnunni og leyfið að hvíla. 
  3. Saxið skalottlauk og hvítlauk smátt og skerið portobellosveppina í sneiðar.
  4. Bætið smá smjöri á sömu pönnu og steikið skalottlauk, hvítlauk og sveppi þar til sveppirnir hafa tekið góðan lit. 
  5. Bætið blöðrukálinu út á pönnuna og steikið stutta stund áður en rjómanum er hellt saman við. 
  6. Látið malla þar til rjóminn hefur þykknað og myndað góða sósu utan um sveppina. Smakkið til með salti og nýmöluðum svörtum pipar. 
  7. Ristið súrdeigsbrauð á pönnu með smjöri þar til það er gullinbrúnt og stökkt. 
  8. Setjið rjómalöguðu sveppina á brauðið og raðið lambalifrinni yfir. Berið fram strax. 

Ljósmynd/Aðsend

Pönnusteikt lambahjörtu með piparrótarsósu, bökuðum rauðrófum og rauðrófugljáa

Fyrir 4

Lambahjörtu eru bragðmikið og skemmtilegt hráefni sem hentar einstaklega vel til snöggrar steikingar. Hér eru þau marineruð í sojasósu og hvítlauk, steikt á heitri pönnu og borin fram með bökuðum rauðrófum, ferskri piparrótarsósu og rauðrófugljáa. 

Hráefni

Lambahjörtu

  • 4 lambahjörtu
  • 100 ml. sojasósa
  • 3 hvítlauksrif
  • Olía til steikingar

Piparrótarsósa

  • 200 g sýrður rjómi
  • 30 g fersk piparrót, fínt rifin
  • Börkur af einni sítrónu
  • Salt eftir smekk

Rauðrófugljái

  • 300 ml. rauðrófusafi
  • 1 msk. sojasósa
  • 2 msk. eplaedik

Bakaðar rauðrófur

  • 4 meðalstórar rauðrófur
  • Smá olía
  • Salt

Aðferð

Lambahjörtu

  1. Hreinsið hjörtun vel og fjarlægið sinar og fitu. Skerið þau upp þannig að þau liggi flöt og auðvelt sé að steikja þau jafnt. 
  2. Saxið hvítlaukinn smátt og blandið saman við sojasósuna.
  3. Setjið hjörtun í marineringuna og látið liggja í að minnsta kosti eina klukkstund, en helst yfir nótt í kæli. 
  4. Takið hjörtun úr marineringunni og þerrið þau létt. 
  5. Hitið pönnu vel með smá olíu og steikið hjörtun við háan hita í um eina mínútu á hvorri hlið, eftir þykkt. 
  6. Takið hjörtun af pönnunni og leyfið þeim að hvíla áður en þau eru skorin í þunnar sneiðar. 

Piparrótarsósa

  1. Rífið ferska piparrót fínt og blandið saman við sýrða rjómann.
  2. Fínrífið sítrónubörkinn út í og smakkið til með salti. 
  3. Geymið kalt þar til rétturinn er borinn fram. 

Rauðrófugljái

  1. Setjið rauðrófusafa, sojasósu og eplaedik í lítinn pott.
  2. Látið suðuna koma upp og sjóðið rólega niður um helming, þar til vökvinn hefur þykknað örlítið og fengið kröftugt bragð. 
  3. Smakkið til og kælið áður en hann er borinn fram. 

Bakaðar rauðrófur

  1. Hitinn ofninn í í 180°C.
  2. Þvoið rauðrófurnar vel og setjið þær heilar í eldfast mót með smá olíu og salti. 
  3. Bakið þar til þær eru orðnar mjúkar í gegn, yfirleitt í um 45-75 mínútur eftir stærð. 
  4. Leyfið þeim að kólna örlítið, flysjið ef þarf og skerið í hæfilega bita. 

Samsetning

  1. Setjið piparrótarsósuna á disk ásamt bökuðum rauðrófum. 
  2. Skerið lambahjörtun í þunnar sneiðar og raðið á diskinn. 
  3. Hellið rauðrófugljáanum yfir og í kringum kjötið.
  4. Berið fram strax. 

Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab