Spilaði brids í „yfirstéttarkvennahópi“ og bauð upp á sérrí

Mæðginin Magdalena Margrét Kjartansdóttir og Þórir Örn Ingólfsson deila fjölskylduuppskriftinni að ostastöngum Matthildar, sem bauð þær fram með sérríi þegar bridsfélagarnir komu í heimsókn. Samsett mynd/Aðsend

Mæðginin Þórir Örn Ingólfsson og Magdalena Margrét Kjartansdóttir deila leyndarmáli af fjölskylduuppskrift sem kemur frá Matthildi Kjartansdóttur, langömmu Þóris. 

Hver er eftirlætissmákakan þín?

„Ostastangir Matthildar Kjartansdóttur langömmu. Það er fjölskylduuppskrift sem ég er byrjaður að reyna mig sjálfur á fyrir jólin,“ segir Þórir Örn Ingólfsson verkfræðingur. Matthildur var fædd 1892 og því ljóst að uppskriftin er afar gömul. Móðir Þóris, listakonan Magdalena Margrét Kjartansdóttir, geymir uppskriftina og þau mæðginin féllust á að gefa uppskriftina að fjársjóðnum.

Hér má sjá langömmu Matthildi á málverki sem meistari Kjarval málaði af langömmu og langafa Þóris, Guðbrandi Magnússyni. Þau hjónin voru miklir vinir listmálarans. Ljósmynd/Aðsend

Sjálf man Magdalena eftir sér afar lítilli vera að pensla stangirnar hjá ömmu sinni.

„Hún spilaði brids í „yfirstéttarkvennahópi“ og bauð upp á sérrí og stangirnar, þær reyktu sígarettur, sem ég man að voru hvítar og gylltar.“

Þórir á spilaborðið í dag.

„Mamma gerði þessar stangir svo líka og ég byrjaði sjálf snemma að búa þær til og hef gert í eflaust 65 ár.“

Það er líka smá skondið að segja frá því að Matthildur sem var gift forstjóra ÁTVR bruggaði einnig dýrindis rabarbaravín. Magdalena segir að það dugi ekki minna fyrir hver jól en að fimmfalda uppskriftina og baka tvo umganga.

Ostastangir Matthildar

„Hún spilaði brids í „yfirstéttarkvennahópi“ og bauð upp á sérrí og stangirnar, þær reyktu sígarettur, sem ég man að voru hvítar og gylltar.“ Ljósmynd/Aðsend

  • 100 g hveiti
  • 90 g rifinn ostur
  • 75 g smjör
  • smávegis af salti, smakkið til
  • 2 tsk. rjómi
  • 1 egg til að pensla með

Aðferð: 

  1. Blandið öllu vel saman og hnoðið.
  2. Fletjið deigið út og skerið í aflanga bita.
  3. Bakið, eða þurrkið öllu heldur, við vægan hita, 90-100 gráður á celcíus. Þar til kökurnar eru stökkar eða í um 1 klst.
  4. Gott er að nota sterkan Óðals Gouda og bæta má smá gráðosti við eða öðrum sterkum. Í raun má nota hvaða ost sem er, líka smurost og afganga.
  5. Geymið deigið á köldum stað í smátíma áður en flatt er út og penslað með eggi.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab