Hafa framleitt 70 þúsund krukkur og eru rétt að byrja

Þórey Hafliðadóttir og Ívar Örn Hansen, betur þekktur sem Helvítis kokkurinn, fagna fjögurra afmæli Helvítis í Jólaþorpinu í Hafnarfirði um helgina. mbl.is/Anton Brink

Mikill uppgangur hefur verið hjá matvælafyrirtækinu Helvítis að undanförnu. Fyrirtækið framleiðir sem kunnugt er eldpiparsultur og síðustu tvö ár hefur Helvítis jólasultan Röndólfur slegið rækilega í gegn. Jólasultan hefur til þessa helst fengið á mörkuðum smáframleiðenda en er nú fáanleg bæði í Krónunni og Nettó.

Fjögur ár eru liðin síðan Ívar Örn Hansen og Þórey Hafliðadóttir stofnuðu Helvítis ehf. og hófu framleiðslu á eldpiparsultum. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar.

„Við erum búin að framleiða hátt í 70 þúsund krukkur frá því við byrjuðum. Við byrjuðum með fimm tegundir af eldpiparsultum haustið 2022 en núna höfum við gefið út alls 14 vörutegundir,“ segir Ívar í samtali við mbl.is.

Gestum gefst færi á að smakka allar eldpiparsulturnar í Jólaþorpinu.

Gestum gefst færi á að smakka allar eldpiparsulturnar í Jólaþorpinu. mbl.is/Anton Brink

„Við erum enn þá partur af smáframleiðendum, erum ekki orðin það stór enn, og því stöndum við bara tvö í þessu og höfum gert allt frá byrjun. Þetta virkar þannig að Þórey fær frábærar hugmyndir og svo framkvæmi ég þær. Ég segi eiginlega já við öllu sem hún stingur upp á,“ segir hann og hlær.

Ívar og Þórey hafa verið með bás í Jólaþorpinu í Hafnarfirði síðustu ár og þar hyggjast þau fagna fjögurra ára afmælinu um helgina. „Þetta verður síðasta helgin okkar þar í ár og við ætlum að hafa rosalega flott tilboð á öllum vörunum okkar alla helgina,“ segir Ívar.

Búast má við að margir vilji næla sér í Helvítis jólasultuna Röndólf sem kemur nú á markað þriðja árið í röð. Fyrsta árið voru framleidd 666 eintök og í fyrra voru þau 999. Öll seldust fljótt og vel upp. Þótt sultan fáist nú líka í Krónunni og Nettó er upplagið þó takmarkað að sögn Ívars.

Nýjasta framleiðslan hefur vakið mikla lukku.

Nýjasta framleiðslan hefur vakið mikla lukku. mbl.is/Anton Brink

Minna úrval verður hins vegar af Helvítis hátíðarsultunni sem er ný framleiðsla og inniheldur kirsuber, eldpipar og piparkökukrydd. Hún fæst bara í Jólaþorpinu og á matarmarkaðinum í Hörpu í desember.

„Frúin fór á flug í sumar og datt niður á þessa hugmynd sem ég svo framkvæmdi. Hún er búin að lukkast svo sjúklega vel og passar ekki bara vel á kex og osta heldur líka á eftirrétti. Sér í lagi á Ris a la mande og ís.“

Ívar segir að þau hreyki sér af því að nota íslenskt hráefni í allar sínar vörur. Hann nefnir þar sérstaklega Helvítis jarðarberjasultuna. „Hún er eina íslenska jarðarberjasultan sem er gerð eingöngu úr íslenskum jarðarberjum.“

mbl.is/Anton Brink

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab