Sanna stóðst strætó áskorunina í gulri viðvörun

Hún verður seint kölluð snobbhæna hún Sanna Magdalena.

Samfélagsmiðlar íslensks stjórnmálafólks eru alltaf undir smásjá og því sem þar fer fram gert skil með reglubundnum og skemmtilegum hætti í Spursmálum. Yfirferðina má í heild sinni sjá í meðfylgjandi myndskeiði eða í rituðu máli hér að neðan.

Tvær afmælisdrollur

Um síðustu helgi áttu tvær ofurdrollur afmæli, það eru nöfnurnar og næstum því afmælissysturnar, þær Ásthildur Lóa, sem áttu sextugsafmæli þann 20. nóvember og Sigríður Ásthildur Andersen, sem fagnaði 55 ára afmæli 21. nóvember. Aldeilis! Og mikið sem þær líta vel út miðað við að vera orðnar svona miklar risaeðlur. Við sendum þeim báðum síðbúnar en góðar afmæliskveðjur.

Sigmundur Davíð ánægður með taupokann

Það þarf sko ekki mikið til að gleðja okkar allra besta Simma Dabba. Á dögunum fjárfesti hann í bók og fékk undir hana margnota taupoka sem hann lýsir sem algjörum kostagrip. Svo sællegur með þetta og þakklátur. Mesta dúllan.

Kostar ekkert að hrósa

Halla Hrund má eiga það að hún er alltaf eitthvað svo ótrúlega almennileg en í vikunni hrósaði hún vinkonu sinni Fidu Abu Libdeh fyrir störf hennar í nýsköpunargeiranum en Fidu voru veitt frumkvöðlaverðlaun ársins á vegum Samorku á dögunum. Konur eru konum bestar.

Rétt eða rangt

Togga Gunn spilaði leikinn rétt eða rangt um bókun 35 í vikunni og skemmti sér vel við þá iðju. Hún viðurkennir að vera pínu fúl út í sjálfa sig fyrir að hafa ekki átt upphaflegu hugmyndina að bókun 35, enda er vitið bara ekki meira en Guð gaf, en af því sögðu sakar hún hugmyndasmiðinn, sem sagt Sjálfstæðisflokkinn, um tækifærismennsku í samhengi við það. Alltaf sami stemmarinn.

Stolt af heilbrigðiskerfinu

Kristrún Frosta segist vera stolt af heilbrigðiskerfinu og segir stöðuna alla vera á réttri leið. Það tekur bara smá tíma að laga Ísland því niðurskurðarhnífurinn er orðinn pínu bitlaus, búið að nota hann svolítið mikið sem sög, greyið.

Lærum af mistökunum

Rósa Guðbjarts minnti sitjandi ríkisstjórn á að gott geti stundum verið að reyna að læra af mistökunum. Það þýði lítið að skattleggja ferðaþjónustuna í drasl þannig að enginn nenni að heimsækja okkur. Ég meina, halló, Kalli og Bimbó - sjá þetta ekki allir eða?

Hræðist gervigreind

Snúlli Másson tók til máls á dögunum og gerði gervigreind að umfjöllunarefni sínu en hann virkar pínu hræddur við Chat og Claude og alla þessa nýju vini okkar. Ég skil ekkert í honum, svo elskulegir, traustir og tryggir vinir sem segja manni hvað maður á að hafa í matinn, hvernig maður á að orða tölvupósta, hvernig maður á að laga hjónaband, hvaða vítamín maður á að taka þegar maður er með fótapirring eða hvað sem er. Það er bara eitthvað svo næs að fá bara að vera farþegi í eigin lífi í friði.

Ferðast með strætó sama hvernig viðrar

Elsku hjartans Sanna Magdalena lætur veðurviðvaranir sko ekki stoppa sig í því að lifa bíllausum lífstíl. Nei, hún er sko engin vælandi og kveinandi snobbhæna eins og margir sem maður þekkir. Hún skellti sér út í óveðrið á dögunum og strætóaðist þvert yfir borgina og mætti í skírn blaut í gegn en á réttum tíma og með þurra skírnargjöf. Alveg mögnuð. Það mættu alveg vera til fleiri svona Sönnur.

Pawel og Grímur í vettvangsferð

Sjálfukóngurinn fór ásamt okkar allra besta Grími Grímssyni í vettvangsferð á SÝN í vikunni þar sem þeir kynntu sér umhverfi einkarekinna fjölmiðla og eitthvað svona stuð. Við bíðum bara eftir að þeir kíki til okkar í Hádegismóana. Alltaf heitt á könnunni og þið alltaf velkomnir kollegar.

Raddir barna fá loks að heyrast

Inga Sæland var að skotskónum í vikunni þegar hún kynnti ný barnaverndarlög sem er ætlað að tryggja að raddir barna fái að heyrast. Well done Inga.

Sjö milljarðar úr hraðbanka

Ingveldur Anna fór með stórleik í nýju myndskeiði þar sem hún reyndi að taka út sjö milljarða króna seðil úr hraðbanki á Suðurlandi en áform ríkisstjórnarinnar um þarna Bláskógabyggðarskattinn svokallaða fer ekki vel í Ingveldi Önnu. Sveiattan bara.

Alsæll á fyrsta sjallaballinu

Nýjasti sjallinn, Ingvar Þóroddsson, mætti á sitt fyrsta sjallaball á Akureyri, í vikunni, þó ekki í sjallanum samt, haha en hann var svona líka ljómandi ánægður með giggið. Þar fór hann með þrumuræðu og var vel tekið. Enda vissi land og þjóð það mætavel að hann hefur alltaf verið sjalli í dulargervi. 

Smelltu á spilarann hér að neðan til að nálgast nýjasta þátt Spursmála í heild sinni:

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Fólkið - Fólk」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读