Jökull í Kaleo býður upp áritaðan gítar

Jökull Júlíusson ásamt Hilmari Gunnarssyni bæjarstjóra Mosfellsbæjar og félögum í ljótum jólapeysum. Ljósmynd/Aðsend

Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, verður í fararbroddi á árlegu styrktarkvöldi Rauðu jólanna sem fram fer í Hlégarði í Mosfellsbæ fimmtudaginn 3. desember. Allur ágóði af miðasölu og uppboði kvöldsins rennur að þessu sinni til uppbyggingar í Reykjadal í Mosfellsdal, þar sem starfræktar eru sumarbúðir fyrir fötluð börn og ungmenni.

Jökull mun flytja eigið efni á styrktarkvöldinu en meðal annarra tónlistarmanna sem koma fram eru Sigurður Guðmundsson úr Hjálmum og Júníus Meyvant.

Að venju verður efnt til uppboðs á ýmsum eigulegum munum og upplifunum. Meðal þess sem boðið verður upp í ár er áritaður gítar frá Jökli, listaverk eftir Snorra Ásmundsson og miðar á tónlistarhátíðina Bergmál sem verður á Vestfjörðum næsta sumar.

Eiga öll að fá að upplifa stemninguna

Um 400 börn og ungmenni nýta sér starfsemi Reykjadals ár hvert. Þar er boðið upp á sumar- og helgardvalir fyrir fötluð börn og ungmenni auk Ævintýrabúða fyrir börn með ADHD, einhverfu og aðrar áskoranir. Þá er þar einnig boðið upp á fjölbreytt félagsstarf og jafningjastuðning fyrir ungt fatlað fólk og fjölskyldur þess.

Núverandi aðstaða í Reykjadal annar hins vegar ekki þörfum starfseminnar og uppfyllir ekki kröfur um aðgengi.

Jökull Júlíusson og Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar ásamt þeim Andreu Róa Sigurbjörnsdóttur og Hildi Helgadóttur í Reykjadal. Ljósmynd/Aðsend

„Ég á sjálfur frábærar minningar úr sumarbúðum og mér finnst að öll börn eigi að fá að upplifa þá stemningu. Það sem mér finnst svo fallegt við Reykjadal er að þar eignast krakkarnir vini sem þau hlakka til að hitta aftur,“ segir Jökull.

Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, hefur staðið að Rauðu jólunum ásamt Jökli undanfarin ár og þekkir starfsemi Reykjadals af eigin raun enda hefur sonur hans sótt þar sumarbúðir.

„Okkur fannst því liggja beinast við að styrkja Reykjadal í ár og mér þykir vænt um að geta lagt þessu starfi lið hér heima í Mosó,“ segir Jökull.

Verðlaun fyrir ljótustu jólapeysuna

Eitt af sérkennum Rauðu jólanna er að gestum ber að mæta í ljótum jólapeysum og verða að venju veitt verðlaun fyrir þá ljótustu.

„Við erum öll full tilhlökkunar fyrir Rauðu jólunum. Jólin eru góður tími til að koma saman, gleðjast og gefa til baka. Mér þykir sérstaklega vænt um að fá að styðja við frábært starf Reykjadals og leggja okkar af mörkum til að bæta aðstöðu og aðgengi fyrir börnin og ungmennin sem sækja starfið. Við hlökkum til að sjá ykkur í Hlégarði, helst í ykkar allra ljótustu jólapeysum,“ segir Jökull.

Miðasala á viðburðinn er hafin.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab