„Hvað í ósköpunum er Macron að gera þarna?“
Emmanuel Macron Frakklandsforseti stillir sér upp með söngkonunni Katy Perry og kærasta hennar, Justin Trudeau. Skjáskot/Instagram
Bandaríska söngkonan Katy Perry birti í gær myndir á Instagram úr Evrópuferð sinni með Justin Trudeau, kærasta sínum og fyrrverandi forsætisráðherra Kanada.
Ein myndanna vakti sérstaka athygli fylgjenda hennar. Þar stillir Emmanuel Macron Frakklandsforseti sér upp fyrir sjálfu með parinu.
„Hvað í ósköpunum er Macron að gera þarna?“ spurði einn fylgjenda Perry. Annar sagði í gamni að söngkonan væri farin að safna þjóðarleiðtogum. Í desember í fyrra birtist mynd af þeim Perry og Trudeau með Fumio Kishida, fyrrverandi forsætisráðherra Japans.
Á öðrum myndum úr ferðinni sjást Perry og Trudeau meðal annars á göngu, við spil og í sínu fínasta pússi. Sjálf gerði Perry stutta hárið sitt að umtalsefni í myndatextanum og kallaði ferðina Evrópufrumraun nýju klippingarinnar.
Sáust fyrst saman í Montreal
Perry, sem er 42 ára, og Trudeau, 54 ára, hafa verið saman í rúmt ár. Þau sáust fyrst saman á göngu í Mount Royal-garðinum í Montreal í júlí í fyrra. Mánuði áður lauk nær áratugalöngu sambandi Perry og leikarans Orlando Bloom.
Trudeau og Sophie Grégoire Trudeau slitu samvistum í ágúst 2023 eftir 18 ára hjónaband.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/59/1695923.jpg)