Gordon Ramsay orðinn afi í fyrsta sinn
Gordon Ramsay við afhjúpun stjörnu sinnar á Hollywood Walk of Fame á dögunum, þar sem hann lýsti yfir tilhlökkun sinni við að verða afi. AFP/Valerie Macon
Breski stjörnukokkurinn Gordon Ramsay er orðinn afi í fyrsta sinn. Dóttir hans, áhrifavaldurinn Holly Ramsay, og eiginmaður hennar, Adam Peaty sem er ólympíumeistari í sundi, eignuðust dóttur í gær, tæpu ári eftir að þau gengu í hjónaband.
Holly, sem er 26 ára, greindi frá gleðitíðindunum á Instagram þar sem hún upplýsti jafnframt að dóttirin hefði hlotið nafnið Daphne June Ramsay-Peaty.
„Þú munt að eilífu vera fallega litla stelpan okkar og litla systir Georges. Þakkir til allra lækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra sem sáu til þess að við værum örugg, heilbrigð og hamingjusöm. Við verðum ævinlega þakklát,“ skrifaði hún.
Fyrir á Peaty sex ára son, George, úr fyrra sambandi sínu við Eirianedd Munro.
Fjölskyldan stækkar
Holly er eitt sex barna þeirra Gordons og Tönu Ramsay. Í síðustu viku fékk stjörnukokkurinn stjörnu á Hollywood Walk of Fame en Holly gat ekki verið viðstödd athöfnina þar sem stutt var í fæðingu.
„Ramsay-fjölskyldan stækkar. Við eigum von á fyrsta barnabarninu okkar eftir nokkra daga,“ sagði kokkurinn við tilefnið.
Fjölskyldudeilur í aðdraganda brúðkaupsins
Holly og Adam gengu í hjónaband í Bath Abbey á Englandi í desember á síðasta ári. Brúðkaupið vakti mikla athygli fjölmiðla vegna harðvítugra deilna innan fjölskyldu brúðgumans.
Deilurnar mögnuðust í aðdraganda brúðkaupsins þegar móður Adams, Caroline Peaty, var ekki boðið í gæsun verðandi tengdadóttur sinnar. Þá var eldri bróðir hans, Jamie, handtekinn í nóvember á síðasta ári vegna meintra hótana í garð sundkappans.
Adam dró í kjölfarið boð flestra fjölskyldumeðlima sinna í brúðkaupið til baka og voru foreldrar hans ekki viðstaddir athöfnina.
Sundkappinn hefur síðan tjáð sig opinberlega um fjölskyldudeilurnar og kveðst ekki útiloka að sættir náist, þótt það muni taka tíma.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗