Segir Cher enn reiða út í sig

„Því miður er hún enn reið út í mig. Hún er langrækin,“ svaraði Christina Ricci spurð hvort hún væri enn í sambandi við Cher. Samsett mynd/AFP/Lisa O'Connor/Manoli Figetakis

Leikkonan Christina Ricci var nítján ára þegar Cher talaði inn á símsvarann hennar og baðst afsökunar á ummælum sínum í tímaritsgrein um Ricci.

Leikkonan hringdi aldrei til baka og telur að það sitji enn í söngkonunni, tæpum þremur áratugum síðar.

Þær Ricci og Cher léku saman í kvikmyndinni Mermaids sem kom út árið 1990. Í spjallþættinum Watch What Happens Live á dögunum spurði þáttastjórnandinn Andy Cohen Ricci hvort þær væru enn í sambandi.

„Nei. Því miður er hún enn reið út í mig. Hún er langrækin,“ svaraði Ricci, sem nú er 46 ára.

Talaði inn á símsvarann

Ricci mundi ekki hvort greinin hefði birst í Rolling Stone eða Premiere. Þar rifjaði Cher upp að hún hefði eitt sinn ávítað Ricci fyrir framkomu hennar við Winonu Ryder á tökustað Mermaids.

„Hún sagði að blaðamenn reyndu alltaf að draga fram það versta og bla, bla, bla, og að henni þætti þetta svo leitt. Ég var nítján ára svo ég hringdi ekki til baka,“ sagði Ricci um skilaboðin frá Cher.

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið“

Cohen velti því upp hvort það væri einmitt þetta sem Cher hefði tekið nærri sér. Ricci tók undir það og sagðist síðan hafa reynt að ná sáttum við söngkonuna en ekkert svar fengið. Hún kvaðst vel geta ímyndað sér að Cher hefði talið rangt eftir sér haft og viljað útskýra málið fyrir henni.

„Og svo hefur þessi unga manneskja þá ósvífni að hringja ekki til baka. Ég yrði alveg brjáluð. Ég skil hana,“ sagði Ricci.

Sjálf kvaðst hún enn hafa mikið dálæti á Cher. Hún sneri sér svo að myndavélinni og ávarpaði söngkonuna. „Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Page Six

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab