Bjóða skipverjum á Jökli áfallahjálp
Rauði krossinn býður áfallahjálp.
Rauði krossinn býður skipverjunum á Jökli ÞH áfallahjálp.
Frá þessu greinir Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum, við mbl.is.
„Þau samtöl hefjast væntanlega flest á morgun, mánudag eða dagana þar á eftir,“ segir hún.
„Allt er þetta gert í samráði við skipverjana sjálfa.“
Stuðningur ávallt í boði
Skipverjunum hvar sem er býðst stuðningurinn frá Rauða krossinum sama hvar þeir eru staddir.
„Sjálfboðaliðar úr viðbragðshópum Rauða krossins, sem starfa um allt land og hafa á að skipa fólki sem hefur reynslu og þjálfun í sálrænum stuðningi, munu veita aðstoðina.“
Samráðshópur um áfallahjálp, sem starfar á landsvísu, og hefur fulltrúa frá ýmsum stofnunum og samtökum, er jafnframt að skipuleggja framhaldsstuðning við þá skipverja sem eftir því óska.
Rauði krossinn vill líka minna á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717.
„Þangað geta allir leitað allan sólarhringinn og fengið stuðning, hlustun og ráðgjöf.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
