Eyddu tæplega 50 milljónum í auglýsingar
Samanlagt námu útgjöld ráðuneytisins og stofnana þess vegna auglýsinga á erlendum samfélagsmiðlum tæplega 5,6 milljónum króna.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra svarar fyrirspurn Hildar Sverrisdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eyþór
Forsætisráðuneytið og stofnanir þess hafa varið tæplega 49 milljónum króna í auglýsingar á síðastliðnum fjórum árum. Þar af runnu 42,3 milljónir króna til innlendra miðla og tæplega 6,3 milljónir til erlendra miðla.
Forsætisráðuneytið sjálft varði tæplega 33 milljónum króna í auglýsingar á tímabilinu, eða rúmlega tveimur þriðju af heildarútgjöldunum. Þar af varði ráðuneytið 18,7 milljónum króna í auglýsingar í desember 2023 einum og sér.
Þetta kemur fram í svari Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Hildar Sverrisdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.
Hildur óskaði eftir upplýsingum um auglýsingakostnað ráðuneytisins og stofnana þess, sundurliðuðum eftir mánuðum, tegund auglýsingamiðla og því hvort um innlenda eða erlenda miðla væri að ræða.
Rúmlega 30 milljónir til íslenskra fjölmiðla
Af þeim 48,6 milljónum króna sem varið var í auglýsingar á tímabilinu runnu 87,1% til innlendra miðla og 12,9% til erlendra miðla.
Alls var 31,4 milljónum króna varið í auglýsingar í íslenskum fjölmiðlum, eða tæplega 65% af heildarfjárhæðinni.
Útgjöld ráðuneytisins og stofnana þess skiptust með eftirfarandi hætti:
- Forsætisráðuneytið: 32,8 milljónir króna.
- Seðlabanki Íslands: 6,2 milljónir króna.
- Þjóðgarðurinn á Þingvöllum: 4,9 milljónir króna.
- Hagstofa Íslands: 4,6 milljónir króna.
Meira en helmingur á einum mánuði
Af þeim 32,8 milljónum króna sem forsætisráðuneytið sjálft varði í auglýsingar á fjögurra ára tímabilinu féllu 57% útgjaldanna til í desember 2023, þegar Katrín Jakobsdóttir gegndi embætti forsætisráðherra.
Þann mánuð var 12,4 milljónum króna varið í auglýsingar í innlendum fjölmiðlum, 4,1 milljón í auglýsingar á erlendum samfélagsmiðlum, tæplega 1,5 milljónum í umhverfisauglýsingar og 682 þúsund krónum í auglýsingar á erlendum vefmiðlum.
Tæpar 5,6 milljónir til erlendra samfélagsmiðla
Af stofnununum þremur varði Seðlabankinn mestu fé í auglýsingar á erlendum samfélagsmiðlum, eða rúmlega 323 þúsund krónum. Til samanburðar varði forsætisráðuneytið sjálft rúmlega fimm milljónum króna í slíkar auglýsingar.
Samanlagt námu útgjöld ráðuneytisins og stofnana þess vegna auglýsinga á erlendum samfélagsmiðlum tæplega 5,6 milljónum króna.
Kostnaður vegna lögbundinna birtinga í Stjórnartíðindum og Lögbirtingablaði er ekki innifalinn í framangreindum fjárhæðum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗