Blóðbankinn á betri stað

Starfsemi Blóðbankans á Akureyri var nú nýverið flutt í nýtt og rúmbetra húsnæði á Glerártorgi. Fyrr á árinu fékk bankinn til umráða nýjan blóðs…

Blóðgjöf Þórleifur Stefán Björnsson var fyrstur til að gefa blóð í nýja bílnum. Hrafnhildur Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur sá um að taka blóðið. Bíllinn verður brátt notaður í ferðum Blóðbankans um norðanvert landið. Morgunblaðið/Margrét Þóra

Starfsemi Blóðbankans á Akureyri var nú nýverið flutt í nýtt og rúmbetra húsnæði á Glerártorgi. Fyrr á árinu fékk bankinn til umráða nýjan blóðsöfnunarbíl, sem fékk nafnið Björg og verður tekinn í notkun á nýju ári.

Nýja húsnæðið er á annarri hæð Glerártorgs við norðurinngang verslunarmiðstöðvarinnar. Þar er til staðar betri aðstaða bæði fyrir starfsfólk og blóðgjafa. Húsnæðið býður meðal annars upp á tvö viðtalsherbergi, sérstaka aðstöðu fyrir fundi og símtöl, vinnurými og betri sameiginlega aðstöðu fyrir starfsfólk.

Hanna Vigdís Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Blóðbankanum, segir að flutningurinn hafi gengið afar vel. Nýja húsnæðið svari betur þeim kröfum sem til starfseminnar eru gerðar.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读