Milljónirnar hlóðust upp: Kostnaðurinn sjöfaldaðist

„Kostnaðaráætlun við undirritun samnings hljóðaði upp á 67 milljónir króna, en gert var ráð fyrir endurmati á verkáætlun strax þá og því var sam…

Svona lítur nýi Veðurstofuvefurinn út, en kostnaður við hann hefur verið töluvert gagnrýndur. Skjáskot/Veðurstofa Íslands

Kostnaður við nýjan vef Veðurstofu Íslands er orðinn tæplega sjöfaldur á við það sem upphaflega var áætlað. Upphafleg kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 67 milljónir króna en útlagður kostnaður stofnunarinnar nemur nú 446 milljónum króna.

Þetta kemur fram í svari Veðurstofunnar við fyrirspurn mbl.is um kostnað við nýjan vef stofnunarinnar.

Þar segir að í upphafi hafi verið ljóst að umfang verkefnisins væri óskýrt og að mikil óvissa hefði ríkt um ástand gagna og upplýsingatækniinnviða stofnunarinnar. Þá hafi náttúruváratburðir bæði haft áhrif á framvindu verkefnisins og kallað á þróun frekari tæknilausna.

Helgi Borg, sem hafði umsjón með gerð eldri vefs Veðurstofunnar og starfaði um árabil sem verktaki hjá stofnuninni, sagðist þó í samtali við mbl.is fyrr í vikunni telja að bæta mætti við allt að 200 milljónum króna við uppgefinn kostnað vegna vinnu sem farið hafði fram innan stofnunarinnar áður en verkefnið var sett í útboð.

Geymir 3.000 undirsíður

Fram kemur í svari Veðurstofunnar að eldri vefur hafi að geyma um 3.000 undirsíður með efni, hlekkjum og birtingu gagna frá hundruðum ólíkra gagnastrauma sem púslað hafi verið saman á síðustu 20 árum.

Vegna óvissu um umfang verkefnisins hafi verið ákveðið í samráði við Ríkiskaup að bjóða út þróunarsamstarf um endurgerð vefsins með það fyrir augum að að fá samstarfsaðila sem hafði þekkingu og getu til að greina og vinna svo viðamikið verkefni. En fram hefur komið að samningur hafi verið gerður við Origo um verkefnið.

„Kostnaðaráætlun við undirritun samnings hljóðaði upp á 67 milljónir króna, en gert var ráð fyrir endurmati á verkáætlun strax þá og því var samið um fast tímaverð til verkloka,“ segir í svarinu.

Kostnaður aukist um tæpar 200 milljónir frá í fyrra

Árið 2023 hafi legið fyrir að ráðast þyrfti í umfangsmeiri endurnýjun á innviðum tengdum vefnum en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir.

Byggði sú niðurstaða á greiningu sérfræðinga á rekstraröryggi og veikleikum í innviðum Veðurstofunnar auk greiningar sérfræðinga Origo á vefumhverfi og bakenda.

Í kjölfarið var kostnaðaráætlunin endurskoðuð og hljóðaði hún þá upp á 207 milljónir króna.

Þegar þróunarvefurinn gottvedur.is var settur í loftið í byrjun febrúar í fyrra var kostnaðurinn hins vegar kominn í um 250 milljónir króna og hefur því aukist um tæpar 200 milljónir króna síðan þá.

Veðurstofan segir verkefnið hafa verið unnið í áföngum eftir vefsvæðum og að endurskoða hafi þurft heildarkostnaðaráætlun í jafn mörgum áföngum. Enda sé hver síða sem birtir rauntímagögn, t.d. veður, jarðskjálfta og snjóflóð, í raun sérstæð þjónusta stofnunarinnar. 

Leiddu í ljós verulega veikleika

Þá hafi fjölda náttúruváratburða haft áhrif á framvindu verkefnisins, bæði vegna anna sérfræðinga stofnunarinnar og aukinna krafna um þróun tæknilausna til upplýsingamiðlunar.

„Sem dæmi komu fram verulegir veikleikar í upplýsingakerfum við eldsumbrotin á Reykjanesi. Þeir vörðuðu aðgengi að fjölbreyttum gögnum og getu kerfanna til að vinna með stór gagnasöfn og miðla upplýsingum með áreiðanlegum hætti. Endurteknar truflanir ollu töfum í miðlun og juku álag sem erfitt var að mæta,“ segir í svarinu.

Þá hafi kostnaður vegna framsetningar á hættu- og áhættumati á Reykjanesskaga bæst við verkefnið auk þess sem hluti kostnaðar vegna loftslagsatlass hafi verið færður á það.

Tæpar 94 milljónir í undirbúning og verkstjórn

Að sögn Veðurstofunnar endurspeglar kostnaðurinn við verkefnið vinnu sérfræðinga á rúmum fjórum árum.

Af þeim 446 milljónum króna sem varið hefur verið til verkefnisins hafa 42% farið í bakenda kerfisins, eða um 187 milljónir króna.

Um 37% kostnaðarins hafa farið í framenda kerfisins, eða um 165 milljónir króna, og 21% í undirbúning og verkstjórn, eða tæpar 94 milljónir króna.

Kostnaðurinn líklega um 50 milljónir

Að mati Helga, sem hafði umsjón með gerð eldri vefsins, var gamli vefur Veðurstofunnar orðinn alvarlega úreltur árið 2012, enda var hann hannaður áður en snjallsímar komu til sögunnar. Hann útbjó tillögur um hvernig væri hægt að þróa vefinn áfram í litlum skrefum en þeim var hafnað það ár, eins og hann greindi frá í samtali við mbl.is í vikunni.

Helgi fékk árið 2016 vilyrði fyrir því að vinna áfram að endurnýjun vefsins. Hann sagðist hins vegar hafa unnið að verkefninu einn og fengið litla sem enga aðstoð innan stofnunarinnar.

Engu að síður hafi vinnan verið langt komin rétt fyrir kórónuveirufaraldurinn.

„Hann var langt kominn og farinn að virka og að auki var ég búinn að gera þjónustu þannig að þar var í raun og veru hægt að sjá spár fyrir á hvaða stað sem er.“

Helgi áætlar að kostnaður við hans vinnu hafi þá numið um 50 milljónum króna. Helstu kort hafi þá verið nær tilbúin þótt enn ætti eftir að koma upp vefumhverfi og sinna einhverjum fleiri þáttum verkefnisins.

Með tilkomu nýs yfirmanns hafi aftur á móti verið ákveðið að hverfa frá þeirri vinnu og setja verkefnið í útboð. Origo tók síðar við verkefninu, eins og fram hefur komið.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读