„Það var rólegt hjá okkur“

Ekki reyndist þörf á að kalla björgunarsveitir út í gær þrátt fyrir óveður sem gekk yfir stóran hluta landsins.

Innlent | mbl | 29.11.2026 | 10:45

Veðurstofan hafði gefið út að um ekkert ferðaveður væri að ræða og varaði við foktjóni og slæmu skyggni. Mynd úr safni. mbl.is/Jónas Erlendsson

Ekki reyndist þörf á að kalla björgunarsveitir út í gær þrátt fyrir óveður sem gekk yfir stóran hluta landsins.

Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, við mbl.is. „Það var rólegt hjá okkur og ekkert útkall,“ segir hann.

Appelsínugul viðvörun var í gildi fyrir Strandir og Norðurland vestra í gær og gul viðvörun á Norðurlandi eystra, Vestfjörðum, á miðhálendinu og á Suðausturlandi.

Veðurstofan hafði gefið út að um ekkert ferðaveður væri að ræða og varaði við foktjóni og slæmu skyggni.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读