Vika til stefnu og enn verulegur ágreiningur

Hvorugt þeirra stjórnmálabandalaga sem þeir Netanjahú og Eisenkot leiða tryggði sér meirihluta á ísraelska þinginu í kosningunum 27. október.

Ágreiningur hefur meðal annars verið uppi innan fylkingar Eisenkots um samstarf við flokka araba og strangtrúaðra gyðinga. AFP/Samsett mynd/Jawel Samad/Maya Levin

Benjamín Netanjahú, starfandi forsætisráðherra Ísraels, og helsti keppinautur hans, Gadi Eisenkot, funduðu í dag um mögulega myndun þjóðstjórnar í landinu. Enn er þó verulegur ágreiningur á milli þeirra.

Í sameiginlegri yfirlýsingu Likud-flokks Netanjahús og Yashar-flokks Eisenkots segir að viðræðurnar hafi verið málefnalegar og að báðir aðilar hafi leitast við að brúa þann verulega ágreining sem ríkir á milli þeirra.

Ekki kemur fram í frétt AFP hvort viðræðurnar hafi skilað einhverjum áþreifanlegum árangri.

Tilbúinn að víkja tímabundið

Viðræðurnar fara fram í kjölfar þess að Netanjahú lýsti sig í gær reiðubúinn til að víkja tímabundið úr embætti forsætisráðherra yrði mynduð þjóðstjórn.

Lagði hann til að þeir Eisenkot skiptust á að gegna embættinu og að Eisenkot, sem er fyrrverandi yfirmaður Ísraelshers, gegndi því á fyrri hluta kjörtímabilsins.

Eisenkot lýsti sig í kjölfarið reiðubúinn til að kanna hvort alvara lægi að baki tilboði Netanjahús.

Hefur viku til að mynda ríkisstjórn

Hvorugt þeirra stjórnmálabandalaga sem þeir Netanjahú og Eisenkot leiða tryggði sér meirihluta á ísraelska þinginu í kosningunum 27. október.

Í kjölfar kosninganna fól Ísak Herzog, forseti Ísraels, Eisenkot að mynda ríkisstjórn og hefur hann frest til 6. desember til þess.

Eisenkot hefur þegar náð samkomulagi um stjórnarsamstarf við tvo flokka en saman ráða flokkarnir þrír yfir 36 af 120 þingsætum. Þarf hann því enn að tryggja sér stuðning fleiri flokka.

Ágreiningur hefur meðal annars verið uppi innan fylkingar Eisenkots um samstarf við flokka araba og strangtrúaðra gyðinga.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Erlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读