Stórauka útgjöld til hermála
Þýska þingið samþykkti í dag fjárlög fyrir árið 2027 sem fela í sér stóraukin ríkisútgjöld. Gert er ráð fyrir verulega aukinni lántöku ríkissjóð…
Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, og Alexander Dobrindt, innanríkisráðherra Þýskalands, fara yfir stöðu mála í þinghúsinu í Berlín. AFP
Þýska þingið samþykkti í dag fjárlög fyrir árið 2027 sem fela í sér stóraukin ríkisútgjöld. Gert er ráð fyrir verulega aukinni lántöku ríkissjóðs til að fjármagna aukin útgjöld til hermála og uppbyggingar innviða.
Fjárlögin voru samþykkt eftir langar umræður þar sem þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu meðal annars fyrirhugaða lántöku ríkisins. Gert er ráð fyrir að nýjar lántökur nemi 210 milljörðum evra, eða um 28.770 milljörðum íslenskra króna, að meðtöldum lántökum sérstakra sjóða.
Verður lántaka þýska ríkisins sú næstmesta frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar, en hún var litlu meiri árið 2021 þegar kórónuveirufaraldurinn stóð yfir.
Friedrich Merz Þýskalandskanslari, sem leiddi fjárlögin til samþykktar ásamt ríkisstjórn sinni, sagði í vikunni að nauðsynlegt væri að efla þýska herinn, sem að hans sögn hefði verið vanræktur allt of lengi.
„Þýskaland er nú betur í stakk búið til að verja sig en nokkru sinni á undanförnum áratugum,“ sagði Merz. Hann sagði þó að gera þyrfti enn betur til að fæla Rússa frá árásum og verja bandalagsríki Þýskalands innan Atlantshafsbandalagsins (NATO).
Aukin útgjöld talin hafa örvað hagkerfið
Gert er ráð fyrir að efri deild þýska þingsins taki fjárlögin, sem hljóða upp á 556 milljarða evra, eða um 76.170 milljarða íslenskra króna, þegar til umfjöllunar. Endanleg umfjöllun deildarinnar um áætlanir í ríkisfjármálum fer fram 19. desember.
Aukin útgjöld ríkisstjórnar Merz til innviða og hermála eru talin hafa stuðlað að því að koma stærsta hagkerfi Evrópu úr stöðnun, þótt hagvöxtur sé enn lítill.
Hagvöxtur í Þýskalandi mældist aðeins 0,1% á þriðja ársfjórðungi en í spá stjórnvalda er enn gert ráð fyrir 1,3% hagvexti á árinu í heild. Yrði það mesti hagvöxtur í landinu frá árinu 2022.
Kristilegir demókratar undir forystu Merz og samstarfsflokkur þeirra í ríkisstjórn, Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD), náðu samkomulagi um fjárlögin þrátt fyrir harðan ágreining um önnur mikilvæg stefnumál.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗