Grunaður um manndráp og ók á fíl á flóttanum
Karlmaður sem grunaður er um að hafa stungið konu til bana á Srí Lanka var handtekinn í dag eftir að hafa ekið á villtan fíl þegar hann reyndi a…
Flótti mannsins tók hins vegar skyndilega enda þegar hann ók á fíl sem kom út úr frumskóginum og inn á veginn skammt frá heimili konunnar. Mynd úr safni. AFP
Karlmaður sem grunaður er um að hafa stungið konu til bana á Srí Lanka var handtekinn í dag eftir að hafa ekið á villtan fíl þegar hann reyndi að komast undan á vélhjóli sínu.
Maðurinn, sem er 49 ára, er grunaður um að hafa stungið konuna á heimili hennar í Anuradhapura-héraði í norðurhluta landsins, að því er lögreglumaður greindi AFP-fréttastofunni frá.
Flótti mannsins tók hins vegar skyndilega enda þegar hann ók á fíl sem kom út úr frumskóginum og inn á veginn skammt frá heimili konunnar.
Vitni sögðu lögreglu að fíllinn hefði virst ómeiddur og haldið aftur inn í frumskóginn.
Maðurinn var handtekinn og liggur nú á sjúkrahúsi þar sem hann nýtur aðhlynningar undir vopnaðri gæslu. Ekki hefur verið greint frá því hvers konar áverka hann hlaut.
Lögregla kveðst jafnframt hafa fundið vopnið sem talið er að hafi verið notað við verknaðinn.
Um 150 manns láta lífið árlega
Átök milli manna og fíla eru tiltölulega algeng á Srí Lanka þar sem aukin byggð og útbreiðsla ræktarlands ganga víða á náttúruleg búsvæði fílanna.
Samkvæmt opinberum tölum hafa um 400 fílar og 150 manns látið lífið árlega undanfarin fimm ár.
Talið er að um 7.000 villtir fílar lifi á Srí Lanka. Dýrin eru álitin þjóðargersemi og njóta verndar samkvæmt lögum.
Íbúar afskekktra þorpa ráðast þó stundum á fíla sem eyðileggja uppskeru þeirra.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗