Ganga til kosninga í skugga mótmæla
Kjörstaðir hafa verið opnaðir í þingkosningum á Spáni sem fram fara í skugga umfangsmikilla mótmæla vegna húsnæðisvandans í landinu.
Lýðflokkurinn, undir forystu Albertos Núñez Feijóo, mælist með meira fylgi en Sósíalistaflokkurinn. AFP/Oscar Del Pozo
Kjörstaðir hafa verið opnaðir í þingkosningum á Spáni sem fram fara í skugga umfangsmikilla mótmæla vegna húsnæðisvandans í landinu.
Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar úr röðum sósíalista, boðaði til kosninga átta mánuðum fyrr en ella eftir að þingið hafnaði tillögum ríkisstjórnar hans um breytingar á húsnæðislöggjöf landsins.
Flokkur Sánchez, Sósíalistaflokkurinn (PSOE), mætir harðri samkeppni frá hinum íhaldssama Lýðflokki (PP), sem gæti þurft á stuðningi öfgahægriflokksins Vox að halda til að tryggja sér þingmeirihluta.
Skoðanakannanir benda til þess að Sósíalistaflokkurinn mælist með heldur minna fylgi en Lýðflokkurinn, undir forystu Albertos Núñez Feijóo. Sánchez kvaðst þó í ávarpi til stuðningsmanna sinna á föstudag vera sannfærður um að sigur væri innan seilingar.
Brottvísun 87 ára konu kveikti mótmælaöldu
Skortur á húsnæði á viðráðanlegu verði hefur verið fyrirferðarmesta málefni kosningabaráttunnar, en þar á eftir koma hækkandi framfærslukostnaður og innflytjendamál.
Mikil mótmælaalda hefur riðið yfir Spán undanfarna mánuði vegna húsnæðisvandans. Mótmælin blossuðu upp eftir að 87 ára konu var gert að yfirgefa heimili sitt í Madríd í september.
Mótmælendur hafa komið saman víða um land og slegið upp tjaldbúðum í nokkrum borgum. Þá var efnt til allsherjarverkfalls 11. nóvember.
Daginn eftir voru samþykktar á þinginu aðgerðir sem meðal annars miða að því að verja viðkvæma hópa leigjenda gegn húsnæðismissi. Lýðflokkurinn hefur hins vegar heitið því að fella aðgerðirnar úr gildi komist hann til valda.
Niðurstöður væntanlegar í kvöld
Um 38 milljónir Spánverja eru á kjörskrá. Kjörstöðum á meginlandi Spánar verður lokað klukkan 20 að staðartíma, eða klukkan 19 að íslenskum tíma.
Búist er við að fyrstu niðurstöður liggi fyrir um klukkustund síðar en talningu atkvæða verður fram haldið í nótt.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗