Eiga á annað hundrað fyrirtæki í Noregi

Aðilar frá Rússlandi, Kína eða Íran eiga 118 fyrirtæki í Noregi um þessar mundir samkvæmt eignarhaldsskrám. Sérfræðingur ber brigður á þá tölu o…

Tilraun Rússa til kaupa á Bergen Engines í mars 2021 vakti gríðarlega athygli. Norsk stjórnvöld stöðvuðu söluferlið. Ljósmynd/Wikipedia.org/AnnetteFrotjold

Aðilar frá Rússlandi, Kína eða Íran eiga 118 fyrirtæki í Noregi um þessar mundir samkvæmt eignarhaldsskrám fyrirtækjaskrárinnar Brønnøysundregisteret, en upplýsingum til hennar skila fyrirtæki í Noregi sjálf að viðlögðum dagsektum.

Jonas Veland, sérfræðingur á vegum hagsmunasamtakanna Tax Justice Norge, segir mat fjöldans þó varfærnislegt í samtali við norska ríkisútvarpið NRK, líklegt sé að fyrirtæki í eigu aðila af þessum þremur þjóðernum séu í raun fleiri, en Veland sérhæfir sig í rannsóknum á leyndu eignarhaldi og skattastefnu norskra yfirvalda.

Mat sitt byggir hann á því að ekki sé skylt að tilkynna eignarhlut undir 25 prósentum.

Koma upplýsingarnar fram í nýrri greiningu samtaka hans á skrá yfir raunverulega eigendur fyrirtækja, svokallaðri eignarhaldsskrá, en samkvæmt henni hafa sextán norsk fyrirtæki tilkynnt að eigendur þeirra séu í Rússlandi, eigendur í Kína ráða yfir 96 fyrirtækjum í landinu og sex er stjórnað af írönskum eigendum.

Þá hafa fyrirtæki jafnvel skilað tilkynningum þess efnis að ekki sé vitað hverjir eigendur þeirra séu, þeim takist ekki að komast til botns í því.

Toppurinn á ísjakanum?

„Ég held að þetta sé bara toppurinn á ísjakanum, við vitum að eignarhald getur birst í mörgum mismunandi myndum,“ segir Mahmoud Farahmand, þingmaður Hægriflokksins á norska Stórþinginu, í samtali við NRK og nefnir dæmi frá Finnlandi árið 2018 þar sem rússneskur ríkisborgari keypti eyjuna Sakkiluoto og setti þar upp herþjálfunarbúðir, eftir því sem bandaríska blaðið New York Times greindi frá á sínum tíma.

„Það er með þessum hætti sem erlend stórveldi eins og Rússland, Kína og Íran geta náð fótfestu í Noregi til að stunda áhrifastarfsemi, næla sér í upplýsingar eða stunda tækniþjófnað,“ bendir þingmaðurinn á.

Þjóðaröryggisstofnun Noregs, NSM, öryggislögreglan PST og efnahagsbrotalögreglan Økokrim hafa ítrekað bent á að erlend ríki á borð við Rússland eða Kína noti yfirtökur eða fjárfestingar til að fá aðgang í Noregi sem getur reynst varhugaverður.

Auðveldi glæpastarfsemi

Þá telur Tax Justice Norge að upplýsingar um eigendur geti varpað ljósi á fleira en mögulega öryggisáhættu.

„Auk þess höfum við áhyggjur af þeirri áhættu að leynt eignarhald auðveldi skattsvik og aðra glæpastarfsemi,“ segir Veland.

Rúmur áratugur er nú síðan Stórþingið ákvað að leynt eignarhald fyrirtækja í Noregi skyldi dregið fram í dagsljósið og ekkert fyrirtæki ætti að geta falið sig á bak við banka, verðbréfafyrirtæki eða andlitslausa fjárfesta.

Tilgangurinn var að almenningi væri sýnilegt hverjir ættu hvað í Noregi, svo sem hvort borgar- eða bæjarfulltrúar ættu eignarhluti í fyrirtækjum sem veittu sveitarfélögum þjónustu eða hver stæði á bak við stofnun nýs gagnavers.

Kemur á óvart hve fáir nota skrána

Leit skrá yfir þetta dagsins ljós árið 2024, en tímafrekt hefur reynst að tilkynna allt það eignarhald sem tilkynna ber. Enn hafa rúmlega 10.000 fyrirtæki í Noregi ekki lagt fram þær upplýsingar sem þeim nú ber skylda til, en skráin nær þó til tæplega 98 prósenta allra sem á henni ættu að vera.

Kemur Veland það á óvart hve fáir hafi tekið skrána í notkun og hefur Tax Justice Norge meðal annars spurt NSM, PST, rannsóknarlögregluna Kripos, skattyfirvöld, fjármálaeftirlitið og fleiri norsk stjórnvöld út í gang mála.

„Ein af hverjum þremur opinberum stofnunum sem eiga að hafa aðgang notar ekki þennan aðgang,“ segir Veland. Kannanir samtaka hans sýni að fjöldi opinberra stofnana hafi aðgang að skránni á pappírum, en noti hann þó ekki.

„Leynt eignarhald býður hættunni um alls kyns öryggispólitíska áhættu heim. Þá vonar maður auðvitað að opinberar stofnanir, sem bera eftirlits- og aðhaldsskyldu, fari raunverulega þarna inn og skoði þessar upplýsingar,“ segir hann enn fremur.

Rýnir í eignarhaldið

NRK hefur skoðað hvaða atvinnugreinar rússnesku, kínversku og írönsku eigendurnir hafi sótt í í Noregi.

Mörg rússnesku fyrirtækjanna sextán eru verslunarfyrirtæki í fylkjunum Troms og Finnmark, en þar er einnig að finna fyrirtæki í fasteignageiranum, flutningum og upplýsingatækniþjónustu í öðrum landshlutum.

Flestir kínversku eigendanna 96 standa á bak við fyrirtæki í verslun eða fjármálum í Noregi, en þeir eiga einnig fyrirtæki sem veita upplýsingatækniþjónustu eða ráðgjafarstarfsemi.

Kínverskir aðilar keyptu Elkem, eitt stærsta iðnfyrirtæki Noregs, árið 2011. Kínverskur sjóður keypti einnig helminginn í sólarsellufyrirtækinu Elkem Solar árið 2014, en það rekur verksmiðju í Kristiansand.

Volvo, Elkem, Ekornes og Stressless eru meðal fyrirtækja í Noregi sem kínverskir aðilar hafa fest kaup á, en íranskir eigendur standa nú á bak við sex verslunarfyrirtæki sem öll eru staðsett í Suður-Noregi.

NRK

NRK-II (Bergen Engines-málið)

The New York Time (Rússinn sem keypti finnska eyju)

Síða norska Stjórnarráðsins

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab