Banvænt einelti vekur mikla reiði: 17 ára stúlka látin
Lögreglan í Indónesíu hefur handtekið fjórar unglingsstúlkur sem grunaðar eru um að bera ábyrgð á dauða framhaldsskólanema, í eineltismáli sem h…
Lögreglan í Indónesíu hefur handtekið fjórar unglingsstúlkur sem grunaðar eru um að bera ábyrgð á dauða framhaldsskólanema, í eineltismáli sem hefur vakið mikla reiði í landinu, að sögn talsmanns lögreglunnar.
Lögreglan í borginni Malang á Austur-Jövu sagði að ráðist hefði verið með hrottalegum hætti á 17 ára framhaldsskólastúlku á miðvikudagskvöld eftir að tvær hinna grunuðu sóttu hana á heimili foreldra hennar.
Þær óku með hana á vélhjóli á stað skammt frá þar sem tvær stúlkur biðu, drógu hana af hjólinu, spörkuðu í hana og börðu þar til hún missti meðvitund, að sögn lögreglustjórans Danang Setiyo Pambudi.
Hann bætti við að fyrsta réttarlæknisfræðilega rannsókn hefði leitt í ljós að fórnarlambið hefði látist úr köfnun.
Fóru með fórnarlambið á sjúkrahús
Jules Abraham Abast, talsmaður lögreglunnar, segir hinar grunuðu, sem allar eru á aldrinum 16 til 17 ára, hafa verið í haldi lögreglu síðan á föstudag eftir yfirheyrslur yfir sjónarvottum.
„Þær eru skilgreindar sem börn sem hafa komist í kast við lögin. Þær fá ekki að þreyta skólapróf sín að svo stöddu þar sem þær sæta enn ítarlegum yfirheyrslum,“ sagði Abast í yfirlýsingu.
Hinar grunuðu eru sagðar hafa farið með fórnarlambið á nærliggjandi sjúkrahús eftir að tilraunir þeirra til að lífga hana við báru ekki árangur.
Seint á föstudagskvöld réðust íbúar, sem voru reiðir vegna málsins, inn í íbúðahverfi þar sem ein hinna grunuðu býr, lentu í átökum við lögreglu og kveiktu í tveimur lögreglubílum. Lögreglan sagðist þó hafa náð tökum á ástandinu á laugardagsmorgun.
Lögreglustjóri héraðsins, sagði að yfirvöld væru að kanna tilvist tveggja myndbanda sem sögð eru sýna fyrri árásir hinna grunuðu á sama fórnarlamb.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/47/41/1474146.jpg)