„Falklandseyjar eru argentínskar“
Alþjóðlegur dómstóll, sem nýtur stuðnings Sameinuðu þjóðanna, hefur hafnað tilraun Argentínu til að stöðva olíuleitarverkefni nálægt Falklandsey…
Argentínumenn hafa í gegnum tíðina gert ákall til Falklandseyja, Javier Milei, núverandi forseti landsins, er þar engin undantekning. AFP/Luis Robayo
Alþjóðlegur dómstóll, sem nýtur stuðnings Sameinuðu þjóðanna, hefur hafnað tilraun Argentínu til að stöðva olíuleitarverkefni nálægt Falklandseyjum.
Samkvæmt umfjöllun BBC höfðu argentínsk stjórnvöld krafist þess að „Sea Lion“-verkefnið svokallaða yrði stöðvað og héldu því fram að enn stæði yfir deila um fullveldi yfir Falklandseyjum, sem eru breskt yfirráðasvæði. Bretland hefur ítrekað hafnað þeirri fullyrðingu.
Eftir úrskurðinn sagði Javier Milie, forseti Argentínu, að „þessi niðurstaða er ekki lokaorðið“ og lýsti því yfir að „Falklandseyjar eru argentínskar“.
Gríðarleg verðmæti í húfi
Málið er nýjasta deilan milli Bretlands og Argentínu, en árið 1982 háðu ríkin tvö 74 daga stríð um eyjarnar.
Talið er að Sea Lion-olíusvæðið, sem er um 209 kílómetrum frá Falklandseyjum, kunni að geyma um 1,7 milljarða tunna af olíu.
Vinnsla á svæðinu á að hefjast innan tveggja ára og gæti skilað gríðarlegum tekjum til þeirra 3.500 íbúa sem búa á eyjunum.
Niðurstaða dómstólsins byggðist að lokum á því að milliríkjadeilur landanna tveggja væru landsvæðiságreiningur og hafréttardómstóll væri því rangur vettvangur til að fjalla um deiluna.
Stjórnvöld í Argentínu kváðust ósammála og í yfirlýsingu eftir úrskurðinn kom fram að „Argentína hefði ekki beðið dómstólinn um að úrskurða um fullveldi“, heldur að beita hafréttarlögum Sameinuðu þjóðanna gagnvart Bretlandi vegna „nýtingar þess á auðlindum okkar“.
Falklandseyjar eru í Suður-Atlantshafi, við strendur Argentínu og þar búa aðeins um 3.500 manns. Mynd/Getty
99,8% vilja tilheyra Bretlandi
Tíu vikna stríðið árið 1982 hófst þegar argentínskar hersveitir gengu á land á Falklandseyjum og gerðu tilkall til yfirráða yfir eyjunum. Þá tókst breskum herleiðangri að hrekja Argentínumenn á brott.
Átökin kostuðu 255 breska hermenn, þrjá eyjarskeggja og 649 argentínska hermenn lífið.
Þrátt fyrir ósigurinn hefur Argentína ávallt haldið fram rétti sínum til Falklandseyja og í gegnum árin hafa ríkisstjórnir landsins hver á fætur annarri fylgt tilkallinu eftir, ýmist af mismikilli hörku eða með diplómatískum aðferðum.
Í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2013 kusu íbúar eyjanna með yfirgnæfandi meirihluta að vera áfram breskt yfirráðasvæði, 99,8% eyjarskeggja greiddu atkvæði með því og aðeins þrír á móti.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
