Með ljósmyndasýningu í Fjarðarkaupum

Hafnfirðingurinn Jóhann Guðni Reynisson!

Jóhann Guðni Reynisson við nokkrar ljósmyndir sínar sem settar hafa verið upp á sýningu fyrir framan afgreiðslukassana í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.

Hafnfirðingurinn Jóhann Guðni Reynisson hefur opnað sína fyrstu sýningu á eigin ljósmyndum. Sýningin er í verslun Fjarðarkaupa og mun standa þar uppi næstu vikurnar, eða þar til skipt hefur verið formlega um eigendur verslunarinnar.

Leiðir Fjarðarkaupa og Jóhanns hafa legið saman um langt árabil, segir í tilkynningu um sýninguna, en hann hefur meðal annars tekið saman sögu verslunarinnar í bók.

Jóhann Guðni hefur stundað ljósmyndun um langt skeið með hléum en hann var orðinn fréttaljósmyndari Fjarðarfrétta aðeins 14 ára. Nú leggur hann áherslu á landslag og náttúru sem er þema sýningarinnar í Fjarðarkaupum. Verkin eru bæði til sýnis og sölu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读