Læknir tjáir sig um „vetrarpíku“ sem hrellir sumar konur

Hefur þú heyrt um „vetrarpíku“? Sumar konur segjast upplifa „vetrarpíku“ á samnefndum árstíma. En hvað er vetrarpíka?

Pressan

Laugardaginn 28. nóvember 2026 18:30

Gervipíkur (múffur) glíma væntanlega ekki við neitt sérstakt vetrarástand.

Hefur þú heyrt um „vetrarpíku“? Sumar konur segjast upplifa „vetrarpíku“ á samnefndum árstíma. En hvað er vetrarpíka?

Sumar konur segja að á veturna glími þær við óvæntan þurrk á og í píkunni, ertingu og óþægindi. Þetta kemur eflaust mörgum á óvart en er samt sem áður upplifun sumra kvenna.

Í umfjöllun Tyla um málið segir að umræðan hafi farið á flug eftir að karlmaður hóf hana  með því að lýsa því hvað áhrif kuldi hefði á typpið og velti því upp í tengslum við það hvort konur upplifi eitthvað svipað.

„Einn morguninn vaknaði ég upp og það var mjög kalt. Þegar ég ætlaði að pissa tók ég eftir að typpið var lokað vegna kuldans, pungurinn var einnig dreginn upp alveg að líkamanum og allt þetta svæði var kalt. Fá píkur kvef og minnka?,“ spurði hann.

Internetið vissi auðvitað svarið. Kona ein blandaði sér í umræðuna og sagðist glíma við ertingu og sýkingar þegar kalt er í veðri og að það hafi hjálpað henni að nota bómullarnærföt, sleppa því að klæðast þröngum fatnaði og að sofa nakin eða í mjög víðum buxum hafi hjálpað. Hún sagðist einnig hafa upplifað frekar óvæntan vetrarvanda – sprungna skapabarma. „Það var ekki fyrr en á þessu ári sem ég komst að því að þetta getur gerst. Þetta er vont en kókosolía og loðnar leggings leysa þetta vandamál að mestu,“ skrifaði hún.

Önnur kona sagðist upplifa aukinn þurrk í píkunni og óþægindi þegar hún hleypur utanhúss á veturna. Hún líkti þessu við að nota klósettpappír úr pappa.

Tyla hefur eftir Andi Toufexis, lækni, að „vetrarpíka“ sé viðurkennt læknisfræðilegt fyrirbæri. Hann sagði ekki liggi fyrir margar rannsóknir á þessu sviði sem staðfesti að kalt veður breyti í sjálfu sér heilbrigði píkunnar en það sem geti breyst sé hvernig píkunni líði og lagði áherslu á að það sé mikilvægur munur á þessu tvennu.

Toufexis sagði að leggöngin séu innri vöðvagöng en píka eigi við um ytri kynfærin, þar á meðal skapabarmana. Það sé húðin í kringum þetta svæði sem geti orðið fyrir ertingu vegna núnings, raks fatnaðar og ilmvara.

Hann sagði að ef konur finna fyrir breytingum á píkunni í köldum mánuðum, þá sé það ekki endilega vegna veðursins. Breytingar verði af náttúrulegum orsökum í tengslum við tíðahringinn og hormónabreytingar í tengslum við brjóstagjöf og í tengslum við tíðahvörf. Allt þetta auki við þurrk í píkunni.

Hann sagði hugsanlegt að vetrarfatnaður og líkamsrækt eigi meiri hlut að máli hvað þetta varðar en hitastigið utanhúss. Þröngur fatnaður geti nuddast við viðkvæma húð og það að vera í rökum æfingafatnaði í langan tíma geti valdið ertingu. Meira að segja það að fara í freyðibað, þar sem ilmefni eru notuð, geti aukið á óþægindin.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读