Úkraínumenn auka hernaðarlega ritskoðun
Yfirvöld í Úkraínu tilkynntu í dag að birtingar á fjölmiðlum á upplýsingum um áhrif árása Rússa á mikilvæga innviði yrðu takmarkaðar. Á sama tím…
Yfirvöld í Úkraínu tilkynntu í dag að birtingar á fjölmiðlum á upplýsingum um áhrif árása Rússa á mikilvæga innviði yrðu takmarkaðar. Á sama tíma hefur Moskva hert sprengjuárásir sínar á landið.
Í tilskipun sem Volodomír Selenskí, forseti Úkraínu, gaf út er ríkisstjórn hans falið að „grípa til brýnna ráðstafana til að banna fjölmiðlum að fjalla um upplýsingar og afleiðingar, eyðileggingar og tímaramma fyrir endurreisn mikilvægra innviða.“
Bæði lönd hafa beitt ritskoðun
Frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022 hafa bæði ríkin beitt hernaðarlegri ritskoðun að einhverju marki.
Úkraína hefur jafnan hvatt fjölmiðla til að birta ekki upplýsingar um tjón eða staðsetningar árása Rússa með þeim rökum að slíkt geti hjálpað Rússum við framtíðarárásir.
Rússar hafa sett sambærilegar takmarkanir og jafnframt gert stóran hluta fréttaflutnings og opinberrar umræðu um stríðið refsiverðan, meðal annars með banni við því að kalla aðgerðir þeirra „innrás“ yfir höfuð.
Í síðustu viku lögðu rússneskir þingmenn fram frumvörp sem sögð eru banna óháðan og óheimilan fréttaflutning af eftirmálum úkraínskra árása og munu brot á því geta varðað ýmist sektum eða fangelsi.
Erfitt að fylgja ritskoðuninni eftir
Tilskipun Selenskís myndi einnig stöðva birtingu upplýsinga um byggingu og ástand varnarmannvirkja á mikilvægum stöðum.
Dmytro Lytvin, ráðgjafi Selenskís, hefur viðurkennt að flókið geti reynst að fylgja tilskipuninni eftir þar sem stærstur hluti slíkra færslna kæmi frá nafnlausum Telegram-rásum.
Rússar hafa þegar gert fjölda flugskeyta- og drónaárása á orkukerfi Úkraínu og aðra mikilvæga innviði, svo sem stórar brýr í Kænugarði, fyrir veturinn.
Árásirnar hafa valdið víðtæku rofi á hitaveitu, rafmagni og vatnsveitu.
Mikill ótti ríkir í Úkraínu um að þessi vetur gæti reynst sá erfiðasti til þessa í stríðinu, sem staðið hefur í nærri fimm ár.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗