Sælkeraveisla hjá sendiherranum
Marie-Gaelle Robles, sendiherra Frakklands, og Michelin-stjörnukokkurinn Nicolas Carro kynntu matarmenningu Brittaníu í veislu í sendiherrabústa…
Matarmenning Brittaníu var í sviðsljósinu þegar íslenskir sælkerar og fagfólk úr matvæla- og veitingageiranum komu saman í bústað franska sendiherrans í Reykjavík nýverið. Þar gafst gestum kostur á að kynnast fjölbreyttum kræsingum frá héraðinu sem liggur í norðvesturhluta Frakklands, og nefnist Bretagne á frönsku.
Gestgjafinn, Marie-Gaelle Robles, sendiherra Frakklands, er sjálf frá Brittaníu. Með henni stóð að kynningunni Michelin-stjörnukokkurinn Nicolas Carro, sem rekur veitingastaðinn á Hôtel de Carantec á strönd héraðsins. Í tengslum við hátíðina bauð hann jafnframt upp á sérstakan matseðil á Tides á The Reykjavík Edition.
Viðburðurinn var liður í Keimi, árlegri franskri matarhátíð sem sendiráð Frakklands á Íslandi stendur fyrir í samstarfi við íslenska aðila. Á hverju ári er sjónum beint að einu héraði Frakklands og matarmenningu þess. Að þessu sinni varð Brittanía fyrir valinu sem fyrr segir, en þar skipa fiskur og sjávarfang veglegan sess á matarborðinu.
Héraðið tengist jafnframt Íslandi sterkum sögulegum böndum í gegnum franska sjómenn sem stunduðu hér fiskveiðar á fyrri tíð.
Sardínur í sparibúningi
Meðal fyrirtækja sem kynntu vörur sínar var La Belle-Iloise, sem býr að nær aldarlangri reynslu af niðursuðu sjávarafurða. Fyrirtækið er þekkt fyrir fjölbreyttar útfærslur á sardínum, makríl og fiskikæfum, svonefndum rillettes.
Úrval af vörum La Belle-Iloise fæst í frönsku sælkeraversluninni Hyalin á Skólavörðustíg.
Litríkar umbúðir í gamaldags stíl vekja athygli og vörurnar henta jafnt til gjafa sem á veisluborðið.
Sardínurnar eru fáanlegar í fjölmörgum bragðtegundum og má meðal annars bera þær fram á súrdeigsbrauði með kapers, rauðlauk og sítrónu.
Gæði og uppruni í öndvegi
Í veislunni var einnig boðið upp á vörur frá framleiðendum sem bera merkið Produit en Bretagne (framleitt í Brittaníu). Þær voru fluttar sérstaklega til Íslands í tilefni viðburðarins með aðstoð franska fyrirtækisins Newrest, sem meðal annars sér um flugveitingar fyrir Icelandair.
Merkið stendur fyrir bretonskan uppruna, gæði og stuðning við atvinnulíf héraðsins. Markmiðið er meðal annars að efla staðbundna framleiðslu og stuðla að því að verðmætasköpun haldist innan svæðisins.
Meðal framleiðenda var kartöfluflögufyrirtækið Brets, en vörur þess eru seldar í nærri tuttugu löndum. Framleiðslan styður við allt að 400 bændur og kartöfluframleiðendur í Brittaníu sem sjá fyrirtækinu fyrir hráefni.
Einnig voru kynntar vörur frá Mère Lalie, Cidrerie Nicol og La Quimperloise. Þar mátti finna eplasíder, hefðbundnar smákökur og aðrar kræsingar sem endurspegla matargerðarhefðir héraðsins.
Með Keimi vill franska sendiráðið kynna íslenskum almenningi og fagfólki fjölbreytileika franskrar matargerðar og efla tengsl landanna á sviði matarmenningar. Að þessu sinni fengu gestir að kynnast þeim tengslum yfir bretonsku veisluborði.
Nicolas Carro, stjörnukokkur frá Bretagne, ásamt Xavier Terrier og Lukasz Chmielewski frá franska fyrirtækinu Newrest. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir, Guillaume Mounier og Élodie Carro kynntu sér matarmenningu Brittaníu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Létt stemning var í loftinu og gestir spjölluðu saman á milli þess sem þeir gæddu sér á gómsætum veitingum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Í veislunni var meðal annars boðið upp á kartöfluflögur frá Brets, en vörur fyrirtækisins eru seldar í nærri tuttugu löndum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Marie-Gaelle Robles ræddi við gesti. Á myndinni eru Élodie og Nicolas Carro, Marie, Xavier Terrier, Lukasz Chmielenski og Gabin Wagner. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗










