Myndir: Tvenn gullverðlaun hjá kokkalandsliðinu á HM

Nú hefur verið tilkynnt að íslenska kokkalandsliðið hafi hlotið gull í síðari keppnisgrein sinni, Chef’s Table, á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg. Liðið hefur því lokið keppni með gull í báðum greinum. Á laugardaginn eldaði liðið þriggja rétta kvöldverð fyrir 110 gesti. Í síðari greininni, Chef’s Table, bar það fram hátíðlega máltíð fyrir gesti og kynnti hugmyndina að baki réttunum. Þrátt fyrir tvenn gull liggur enn ekki fyrir í hvaða sæti Ísland endar á mótinu.

Íslenska hálendið var leiðarstefið í Chef’s Table á þriðjudag. Á meðal réttanna voru bleikja gljáð með dashi og svartri sítrónu, reykt ýsa með fenníku, sellerírót og epli og gufusoðið hnúðkál fyllt með grænum baunum og morkilsveppum. Með íslensku mjólkurbrauði var meðal annars borið fram þeytt smjör með þurrkuðum steinbít.

Fengu gull í báðum greinum árið 2014

Fleiri en eitt lið geta hlotið gull í sömu keppnisgrein. Samanlögð stig úr báðum greinum ráða lokaröðinni og þar með því hvaða lið verður heimsmeistari. 

Íslenska liðið fékk einnig gull í báðum greinum á heimsmeistaramótinu árið 2014 og varð þá í fimmta sæti samanlagt. Nú bíður liðið niðurstöðu um hvort árangurinn að þessu sinni skili því á verðlaunapall.

„Heildarúrslitin verða kynnt á verðlaunahátíð mótsins í Luxexpo-höllinni í Lúxemborg á morgun, fimmtudaginn 26. nóvember, klukkan 14.00 að staðartíma, klukkan 13.00 á Íslandi,“ segir Þórir Erlingsson, framkvæmdastjóri kokkalandsliðsins.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab