Nýjasta æðið í eldhúsinu

Hjá Völundi Snæ Völundarsyni á veitingastaðnum Þorgrími á Stóru-Laugum í Reykjadal er allt eldað á steypujárnspönnu. Ljósmynd/Aðsend

Rjúkandi matur borinn fram á svartri steypujárnspönnu vekur matarlyst áður en fyrsti bitinn er tekinn. Hjá Völundi Snæ Völundarsyni á veitingastaðnum Þorgrími á Stóru-Laugum í Reykjadal er þessi framsetning hluti af upplifuninni. Heima fyrir má sækja innblástur í sama anda og bera bæði aðalréttinn og eftirréttinn fram á pönnunni.

Steypujárnspannan er gamall kunningi í eldhúsinu en möguleikarnir ná langt út fyrir hefðbundna steikingu. Á henni má elda kjúkling og fisk, baka loftkennda ofnpönnuköku eða súkkulaðiköku með mjúkri karamellumiðju. Hér eru fimm girnilegar uppskriftir sem gefa tilefni til að draga pönnuna fram.

Ofnpönnukaka Hildar

Stór, mjúk og loftkennd pönnukaka Hildar Rutar Ingimarsdóttur lyftist fallega í heitri steypujárnspönnu í ofninum. Deiginu er blandað saman á örfáum mínútum og síðan sér ofninn um það sem eftir er. Fersk ber, flórsykur og síróp fullkomna réttinn sem sómir sér jafnt á morgunverðarborðinu sem sætur endir á góðri máltíð.

Kjúklingur Völlu

Gullin húð, safaríkt kjöt og ilmandi soð sem verður að bragðmikilli sósu. Kjúklingaréttur Völlu Gröndal með hunangi, dijonsinnepi, hvítlauk og timían á vel heima á steypujárnspönnunni, þar sem eldunin hefst á hellunni og heldur áfram í ofninum. Berið fram með ofnsteiktum kartöflum, fersku salati og góðu brauði til að njóta sósunnar til fulls.

Parmesanhjúpuð rauðspretta Hrefnu 

Parmesanostur, reykt paprika, hvítlaukur og timían gefa rauðsprettunni bragðmikinn hjúp í þessum einfalda rétti Hrefnu Rósu Sætran. Fiskinn má elda á steypujárnspönnu í ofninum eða grillinu og bera fram á pönnunni. „Fiskur er ótrúlegt hráefni,“ segir Hrefna, sem hvetur fólk til að nýta fjölbreytta möguleika hans í eldhúsinu.

Súkkulaðikaka Svövu

Þessi uppskrift er okkar uppáhald þar sem útkoman er hreint út sagt frábær. Við erum nokkuð viss um að þeir sem eiga steypujárnspönnur hafi bakað þessa uppskrift vikulega eftir að uppskriftin kom fyrst út, því þessi kaka er algjör draumur. 

Súkkulaðibitakaka Lindu

Linda Ben sýnir að steypujárnspannan á líka erindi á eftirréttaborðið. Hér bakar hún stóra súkkulaðibitaköku með mjúkri karamellumiðju, þar sem bræddar rjómakaramellur leynast á milli tveggja laga af kökudeigi. Girnilegur endir á góðri máltíð og tilvalið að bera kökuna fram í pönnunni.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab