Smákökur fyrir fólk í „nammibindindi“

Þessar smákökur njóta vinsælda hjá heimilisfólki. Ekki bara hjá þeim sem eru í sælgætisbindindi. mbl.is/Marta María

Á dögunum ákvað vinnustaður eiginmanns míns að fara í „nammibindindi“. Það var líklega vegna þess að sumir starfsmenn voru farnir að borða nokkra hlauppoka á dag þegar mikið álag var á fólki. Maðurinn sem ég deili rúmi með er einn af þessum hlaupætum sem lentu í stórlegum vandræðum þegar búið var að girða fyrir slíkt át á vinnutíma. 

Hann spurði mig: „Hvað get ég eiginlega borðað í staðinn? Ég mun veslast upp. Ég má ekki við því að léttast meira.“

Ég setti því eitt og annað í blandara og sendi hann með smákökur í vinnuna fyrir fólk í „nammibindindi“.

Ég átta mig á því að í uppskriftinni er bæði hunang og döðlur en reglurnar á vinnustaðnum voru eitthvað á þá leið að bannað var að borða sælgæti sem var flokkað sem sælgæti samkvæmt tollaskrá.

Smákökur fyrir fólk í „nammibindindi“

Auðvelt er að skella öllu í blandara og þeyta saman.

Auðvelt er að skella öllu í blandara og þeyta saman. mbl.is/Marta María

  • 1/2 bolli lífræn kókósolía
  • 1/2 bolli lífrænt hunang
  • 1/2 bolli lífrænt hreint kakó
  • 1/4 bolli hnetusmjör eða möndlusmjör
  • 2 bollar kókósmjöl
  • 6 döðlur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 tsk. salt

Aðferð: 

  1. Byrjið á því að setja kókósolíuna í blandara ásamt hunangi og hnetusmjöri og þeytið vel.
  2. Döðlunum bætt út í og þær maukaðar saman við blönduna. 
  3. Svo er kakóinu bætt út í ásamt kókósmjölinu.
  4. Í lokin er vanilludropum bætt út í og saltinu.
  5. Þegar allt er búið að þeytast vel saman er annaðhvort hægt að setja deigið í sílikonform eða bara móta kúlur með höndunum.
  6. Svo er gott að saxa niður hnetur og setja yfir.
  7. Um leið og búið er að móta kúlurnar eru þær settar í frysti og best er að geyma þær þar. 

Það er gott að taka með sér þrjár smákökur í vinnuna og drekka eitthvað gott lífrænt te með þeim. mbl.is/Marta María

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab