Er meiri sykur í vínglasinu en þú heldur?
Blaðamaðurinn Ray Isle skoðar sykurmagn í víni og bendir á að bragðið og merkingar á flöskunni segi ekki alla söguna.
Margir tengja vín við mikið sykurmagn, en er það alltaf raunin? Ray Isle, blaðamaður sem sérhæfir sig í umfjöllun um áfengi, einkum vín, fjallar um málið í nýlegri grein hjá Food & Wine og bendir á að sykurmagnið geti verið mun minna en neytendur ætla.
Í bandarískri könnun Wine Market Council frá árinu 2022 tengdu 47% svarenda vín við mikið sykurmagn. Isle segir þá hugmynd ekki endilega samræmast innihaldi þurrra vína.
Vín er framleitt úr þrúgusafa sem inniheldur náttúrulegan sykur. Við gerjun breyta gersveppir sykrinum í alkóhól og koltvísýring. Sykurinn sem verður eftir kallast afgangssykur og magn hans ræður meðal annars því hversu sætt vínið er.
Hvað er í glasinu?
Í þurrum vínum er afgangssykurinn yfirleitt lítill. Innihaldi vín til dæmis fjögur grömm af sykri á lítra eru aðeins 0,6 grömm í 150 millilítra glasi.
Isle bendir jafnframt á að hitaeiningar í þurru víni komi að mestu úr alkóhólinu sjálfu.
Í greininni birtist einnig tafla þar sem sykurmagn í ýmsum drykkjum er borið saman. Samkvæmt henni inniheldur um 240 millilítra glas af appelsínusafa frá Minute Maid 24 grömm af sykri og um 355 millilítra dós af Coca-Cola 39 grömm.
Til samanburðar eru um 2,3 grömm í 150 millilítra glasi af Meiomi Pinot Noir frá 2023. Sykurmagnið segir þó aðeins hluta sögunnar, enda er bæði áfengisinnihald og stærð skammta mismunandi.
Bragðið segir ekki alla söguna
Samkvæmt Isle getur afgangssykur gert vín mýkra og ávaxtaríkara án þess að neytendur upplifi það sérstaklega sætt.
Til að kanna þetta lét hann mæla sykurmagn í nokkrum vinsælum vínum. Í Kendall-Jackson Vintner’s Reserve Chardonnay frá 2024 mældust 6,7 grömm á lítra og í Meiomi Pinot Noir frá 2023 voru þau 15,4. Til samanburðar mældust þrjú grömm á lítra í La Crema Monterey Pinot Noir frá sama ári.
Þetta sýnir að vín sem neytendur kunna að setja í svipaðan flokk geta innihaldið mismikið af sykri.
Án viðbætts sykurs er ekki það sama og sykurlaust
Isle gerir einnig athugasemdir við markaðssetningu vína sem eru sögð „hrein“ eða án viðbætts sykurs. Slíkt orðalag geti gefið í skyn að aðrar víntegundir séu almennt sykraðar sérstaklega, þótt afgangssykur verði eftir við gerjunina sjálfa.
Merkingin „án viðbætts sykurs“ þýðir ekki að vínið sé sykurlaust. Í því getur enn verið náttúrulegur þrúgusykur sem varð eftir við gerjun.
Hann bendir líka á að lífræn vín og náttúruvín séu ekki sjálfkrafa sykurminni en önnur vín. Gerjunin byggist á sama ferli og sykurmagnið getur verið mismunandi.
Isle segir því borga sig að skoða upplýsingar um sykurinnihald frekar en að treysta eingöngu á bragðið eða lýsingar á flöskunni. Lítið sykurmagn segir þó ekki alla söguna um vínið, enda er alkóhólið þar enn.
Nánar má lesa um umfjöllun Isle og niðurstöður mælinganna í grein hans á vef Food & Wine.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗