Frægasta hótelið í London svipti hulunni af jólatrénu

Hvernig finnst þér jólatréð?

Jólatréð á hótelinu Claridge's er fallegt og fyndið í ár.

Jólatréð á hótelinu Claridge's er fallegt og fyndið í ár. Skjáskot/Instagram

Hótelið Claridge's er eitt þekktasta hótelið í London. Það er sérstaklega skemmtilegt að heimsækja hótelið í aðdraganda jólanna en þekktir einstaklingar sjá um að hanna sérstök jólatré fyrir anddyrið. Í ár var það hönnuðurinn Andya Hindermarch. 

Jólatréð í ár samanstóð af himinháu jólatré og kofa sem var hugsaður sem bústaður jólasveinsins. Í kofanum reynir jólasveinninn að leysa úr flóknustu óskunum fyrir jólin og skrifar bréf sín. Í kofanum eru skemmtileg smáatrið á borð við nærbuxur jólasveinsins. 

Kofinn við jólatréð er hugsaður sem bústaður jólasveinsins.

Kofinn við jólatréð er hugsaður sem bústaður jólasveinsins. Skjáskot/Instagram

Hélt upp 21 árs afmælið sitt á hótelinu

Hindermarch sem er að nálgast sextugt er eins og svo margir aðdáandi hótelsins. „Ég hélt upp á 21 árs afmælið mitt hér, fyrir öllum þessum árum og fyrir fjölskylduna mína hefur hótelið lengi verið staður fyrir sérstök tilefni. Það er eitthvað við það að ganga inn marmarainnganginn, sjá þennan tignarlega stiga og þessar art deco-dyr,“ sagði Hindermarch í viðtali við Wallpaper. 

Claridge's er í heinu þekkta Mayfair-hverfi.

Claridge's er í heinu þekkta Mayfair-hverfi. Ljósmynd/Booking

Gamalt og glæsilegt

Hótelið á rætur að rekja til Mivart hótelsins sem var stofnað árið 1812. Með tímanum stækkaði hótelið og er nú eitt glæsilegasta hótelið í stórborginni. Það er þekkt fyrir að bjóða upp á góða heilsulind. Veitingastaðirnir á hótelinu eru vinsælir og þar á meðal síðdegisteið sem þeir bjóða upp á eða hið svokallaða „afternoon tea“ eins og Bretarnir kalla síðdegishressinguna. 

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Ferðalög」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读