Kúala Lúmpúr í uppáhaldi

Awkwafina er hrifin af Malasíu.

Awkwafina er hrifin af Malasíu. AFP/VALERIE MACON

Leik-og rappkonan Awkwafina er alin upp í New York en hún segir að Bandaríkjamenn sem hafa ekki farið út fyrir land sitt átti sig ekki á hversu stór heimurinn er. Borgin Kúala Lúmpúr er í miklu uppáhaldi hjá henni. 

Stjarnan úr Crazy Rich Asians segir að heimaborgin New York sé í miklu uppáhaldi hjá henni. Hún sagði í ferðaviðtali við tímaritið Condé Nast Traveller að höfuðborg Malasíu sé í miklu uppáhaldi. 

„Kúala Lúmpúr í Malasíu er ein af uppáhaldsborgunum mínum og einn af fyrstu stöðunum sem ég heimsótti í Asíu. Stór hluti af Crazy Rich Asians var tekinn upp þar. Við eyddum tímanum á flottum leynibörum og ég féll alveg fyrir matnum, sérstaklega Hainan-kjúklingurinn og nasi lemak.“

Kúala Lúmpúr leynir á sér.

Kúala Lúmpúr leynir á sér. AFP/Mohd Rasfan

Awkwafina fór í skólaferðalag til Grikklands sem unglingur en það var í fyrsta skipti sem hún var án foreldra sinna í fríi. 

„Það var algjör snilld. Mér fannst ég virkilega vera að lifa lífinu. Við vorum í Aþenu í tvær vikur og fórum svo í siglingu til Santorini, Mykonos, Ródos og Krítar. Það var svo gaman. Ég hugsaði bara: Við eigum þetta ekki skilið. Það var alveg súrrealískt að vera í Evrópu í fyrsta sinn. Þegar maður hefur aldrei farið út fyrir Bandaríkin áttar maður sig ekki á því hvað heimurinn er stór,“ sagði stjarnan. 

Leikkonan Awkwafina með Golden Globe verðlaun.

Leikkonan Awkwafina með Golden Globe verðlaun. AFP

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab