Svona nýtur þú aðventunnar í London eins og Harry og Meghan
Hjónin Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja af Sussex skelltu sér í jólaland í Hyde Park með börnunum sínum á dögunum. Ef fólk er á leið til London fyrir jólin er um að gera að taka hluta dags og njóta lífsins eins og kóngafólkið.
Jólalandið í Hyde Park heitir Winter Wonderland og opnaði í lok nóvember og er opiðið þangað til í byrjun janúar. Harry, Meghan og börnin fengu að taka forskot á sæluna og mættu áður en búið var að opna fyrir almenna gesti að því fram kemur á vef breska miðlinum Standard. Harry fór með hinum sjö ára gamla Archie í klessubíla. Meghan sást einnig fara í rússíbana. Var sérstaklega tekið eftir því hversu líkur Archie er föður sínum. Hinn fimm ára gamla Lilibet var einnig með í för.
Í Winter Winderland er hægt að fara í hin ýmsu tæki, stór sem smá en einnig kaupa veitingar sem ylju köldum kroppum á aðventunni í London.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

