Hreifst af íslenskri gestrisni
Útsýnið úr herberginu var að mati Moralejos besta kvikmyndin sem í boði var. Ljósmynd/David Moralejo
David Moralejo hrósar móttökunum á Hótel 360 skammt frá Selfossi í umsögn sinni í breska ferðatímaritinu Condé Nast Traveller. Hann segir kynni sín af fjölskyldunum tveimur sem reka hótelið hafa kennt sér hvað íslensk gestrisni felur í sér.
Hótelið stendur á hæð með útsýni til allra átta. Þar eru 31 herbergi og svítur, allt frá fjölskylduherbergjum til 100 fermetra svítunnar sem Moralejo gisti í. Í henni eru tvö svefnherbergi. Einnig er hægt að fá samliggjandi herbergi með dyrum á milli og sum herbergjanna eru með 27 fermetra verönd.
Guðbjörg Anna Árnadóttir innanhússhönnuður, systir eins eigendanna, sótti innblástur í íslenskar byggingarhefðir. Viður og jarðlitir setja svip á herbergin og sums staðar minna litir og áferð á torf og grjót. Á veggjunum má sjá mjúkt bouclé-efni og á gólfunum eru sérgerð, handunnin teppi. Engin tvö eru eins.
Moralejo nefnir sérstaklega kyrrðina, norsku rúmin og gólfhitann. „Okkur til mikillar ánægju eru engin sjónvörp,“ skrifar hann. Besta kvikmyndin blasti að hans mati við út um gluggann.
Fjölskyldusagan á veggjunum
Árhringirnir í merki hótelsins vísa til sameiginlegrar sögu fjölskyldnanna tveggja. Á herbergjunum má líka sjá myndir úr Rafskinnu, rafknúinni bók sem Gunnar Bachmann, afi Hrefnu Bachmann, eins eigenda hótelsins, útbjó fyrir verslunarglugga í Austurstræti árið 1932.
Gunnar samdi textana og listmálarinn Tryggvi Magnússon myndskreytti bókina á árunum 1933 til 1943. Með tímanum varð Rafskinna hluti af jólahaldinu í miðbæ Reykjavíkur.
Kampavín á Vatnajökli
Hinrik Örn Lárusson stýrir eldhúsinu á veitingastað hótelsins, Hnaus. Matseðillinn tekur mið af árstíðunum, mjólkurvörurnar koma frá Gunnbjarnarholti og lambakjötið frá bæjum í nágrenninu. Moralejo smakkaði meðal annars þorsk með káli, gerjuðum hvítlauk og kampavínssósu. Í morgunverðinum voru skyr, ostar, lax og bakkelsi auk þess sem gestir gátu pantað egg að eigin smekk.
Ein eftirminnilegasta máltíð ferðarinnar var þó samloka á Vatnajökli. Moralejo og ferðafélagar hans fóru yfir ár á breyttum Ford-jeppa með leiðsögumanni og héldu síðan fótgangandi um jökulinn. Þar gæddu þau sér á samlokum með skinku, osti, kryddjurtum og sinnepi og skáluðu í kampavíni. Moralejo segir ísfötuna hafa verið óþarfa í fimmtán stiga frosti.
Vill snúa aftur með Laxness í farteskinu
Á hótelinu er bókasafn með arni, leikjaherbergi og bíósalur með stórum sófum. Moralejo kallar þó 350 fermetra heilsulindina „gimsteininn í kórónu hótelsins“. Þar eru tvær heitar laugar, kaldur pottur og tvö gufuböð. Hann lýsir því sem einstakri upplifun að láta líða úr sér í 38 gráðu heitri laug undir berum himni í tíu stiga frosti.
Gestir geta beðið um að vera vaktir ef sést til norðurljósa. Moralejo sá þau aldrei meðan á dvölinni stóð en segist þar með hafa ástæðu til að koma aftur.
Fari svo veit hann hvað hann vill hafa með í farteskinu. Hrefna mælti með Heimsljósi eftir Halldór Laxness og nú segist Moralejo helst vilja snúa aftur með fangið fullt af bókum skáldsins.
Hótel 360 stendur á hæð skammt frá Selfossi og dregur nafn sitt af útsýninu til allra átta. Ljósmynd/David Moralejo
Stórir gluggar í herbergjunum gefa gestum færi á að njóta útsýnisins yfir Suðurland. Ljósmynd/David Moralejo
Bókasafn, leikjaherbergi og bíósalur eru meðal þeirra rýma sem gestir hafa til umráða utan herbergjanna. Ljósmynd/David Moralejo
Heilsulindin á Hóteli 360 er 350 fermetrar og hluti baðaðstöðunnar er undir berum himni. Ljósmynd/David Moralejo
Hótelið er í um stundarfjórðungs akstursfjarlægð frá Selfossi og um klukkustund tekur að aka þangað frá Reykjavík. Ljósmynd/David Moralejo
Fjölskyldur geta valið á milli fjölskylduherbergja og tveggja samliggjandi herbergja með dyrum á milli. Ljósmynd/David Moralejo
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗












