Bílaverkstæði í Brussel breytt í listasafn

Safnið er 40 þúsund fermetrar að stærð og hefur verið áratug í undirbúningi.

Þar sem Citroën rak áður bílaverkstæði við skipaskurðinn í Brussel stendur nú 40 þúsund fermetra safn helgað myndlist og byggingarlist. AFP/Nicolas Tucat

Listasafnið Kanal-Centre Pompidou verður opnað í Brussel á laugardaginn. Safnið er helgað nútíma- og samtímalist auk byggingarlistar og er til húsa í gömlu bílaverkstæði Citroën við skipaskurðinn milli Brussel og Charleroi.

Verkstæðið hefur verið gert upp og við það hafa bæst þrjár nýbyggingar.

Auk sýningar- og kvikmyndasala eru þar bókasafn og leiksvæði fyrir börn. Gestir geta einnig komið við í bakaríi safnsins eða tyllt sér á þakbarnum.

Ein af opnunarsýningunum nefnist An infinite woman og fjallar um hvernig listamenn af afrískum uppruna hafa endurtúlkað myndir af Mangbetu-konum frá Kongó. Samstarf við Pompidou-safnið í París gerir Kanal jafnframt kleift að sýna verk úr safneign þess.

Í opnunarvikunni er von á tæplega fimm þúsund börnum úr 27 skólum í nágrenninu.

Að sögn safnsins gengu allir 30 þúsund frímiðarnir á sýningarnar út á einum degi. Gestir geta þó enn litið inn og sótt ýmsa listviðburði án endurgjalds.

Independent

Maður gengur um sali Kanal-Centre Pompidou í Brussel. Safnið verður opnað almenningi á laugardag eftir margra ára tafir og fjárhagserfiðleika. AFP/Nicolas Tucat

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab