Þúsundir hunda fara huldu höfði í Reykjavík
Stefán Pálsson varar við alvarlegum afleiðingum.
Þótt flestir hundar séu hin mestu gæðablóð geta jafnvel litlir hundar valdið alvarlegu líkamstjóni. Þá skiptir máli að ábyrgðartrygging sé til staðar. Ljósmynd/Colourbox
Tæplega 11 þúsund hundar í Reykjavík gætu verið óskráðir hjá borginni, samkvæmt mati Dýraþjónustu Reykjavíkur, og falla þeir þá utan ábyrgðartryggingar borgarinnar.
Verði fólk fyrir alvarlegu hundsbiti gæti það þurft að sækja milljónir króna í bætur beint til hundaeigandans sé hundurinn ekki ábyrgðartryggður með öðrum hætti.
Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins og fulltrúi í íþrótta- og útilífsráði Reykjavíkur, lýsir áhyggjum af stöðunni í samtali við mbl.is.
Hann segir jafnframt óljóst hver muni taka ákvarðanir um aflífun hættulegra hunda þegar heilbrigðisnefnd Reykjavíkur verður lögð niður um áramót.
Stefán telur eðlilegt að sömu sjónarmið gildi um ábyrgðartryggingar hunda og bifreiða.
Telja aðeins fimmtung hunda á skrá
Í nýlegri kynningu Dýraþjónustu Reykjavíkur kemur fram að 2.726 hundar séu skráðir í borginni. Dýraþjónustan telur hins vegar að einungis um fimmtungur hunda í Reykjavík sé skráður.
Samkvæmt því mati gætu hundar í borginni verið um 13.600 talsins.
Í yfirliti yfir tilkynningar til Dýraþjónustunnar eru 42 mál vegna hundabita. Í 28 tilvikum beit hundur manneskju en í 14 tilvikum annan hund.
Ekki kemur þó fram í yfirliti Dýraþjónustunnar til hvaða tímabils tölurnar ná.
Stefán segir erfitt að áætla raunverulegan fjölda hunda í borginni. Jafnvel þótt borginni berist ábending um óskráðan hund skorti að hans sögn úrræði til að knýja á um skráningu hans.
Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins, telur að sömu sjónarmið ættu að gilda um ábyrgðartryggingar hunda og bifreiða. mbl.is/María Matthíasdóttir
Ekki sama hvernig hundurinn er tryggður
Árlegt hundagjald í Reykjavík nemur 18.450 krónum og er ábyrgðartrygging innifalin í gjaldinu. Ekkert gjald er innheimt á skráningarári hundsins.
Umráðamönnum hunda í Reykjavík er skylt að hafa gilda ábyrgðartryggingu samkvæmt samþykkt borgarinnar um hundahald.
Þótt margir hundaeigendur kaupi gæludýratryggingar hjá tryggingafélögunum bendir Stefán á að þær nái ekki endilega til tjóns sem hundarnir valda öðrum. Oft sé þeim fyrst og fremst ætlað að mæta kostnaði vegna veikinda eða slysa hundanna sjálfra.
Aldur hundanna getur einnig sett eigendum skorður. Samkvæmt skilmálum Sjóvár er til að mynda ekki hægt að kaupa hundatryggingu fyrir hunda eldri en fimm ára og er tryggingin ekki endurnýjuð eftir að hundurinn nær tíu ára aldri. Aldurstakmörk við kaup á gæludýratryggingum hjá TM miðast einnig við fimm ára aldur.
Hjá VÍS er hins vegar hægt að kaupa sérstaka ábyrgðartryggingu fyrir hunda án þess að efra aldursmark sé tilgreint.
Í skilmálum sumra tryggingafélaga kemur jafnframt fram að tjón fáist ekki bætt ef rekja má það til þess að ekki hafi verið farið eftir lögum og reglum um dýrahald.
Ekki liggur fyrir hve margir óskráðir hundar í Reykjavík eru ábyrgðartryggðir hjá tryggingafélögunum.
„Við eigum bara að hugsa þetta eins og bíla“
Stefán bendir á að jafnvel litlir og að því er virðist sakleysislegir hundar geti valdið alvarlegum slysum. Hljóti einstaklingur varanlega örorku eftir hundabit geti milljónir króna verið í húfi.
„Þá viltu ekki þurfa að treysta á að hundaeigandinn sé borgunarmaður,“ segir Stefán.
Hann nefnir í þessu samhengi hversu strangt eftirlit er haft með því að bifreiðar séu ábyrgðartryggðar hér á landi.
„Við eigum bara að hugsa þetta eins og bíla,“ segir hann.
Nábýli manna og hunda eykst
Stefán segir málið ekki síst umhugsunarefni í ljósi þess að nábýli manna og hunda fer vaxandi.
Í nóvember í fyrra var frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, samþykkt á Alþingi og þurfa eigendur íbúða í fjölbýlishúsum ekki lengur að afla samþykkis annarra eigenda fyrir hunda- og kattahaldi.
Markmið Ingu með breytingunum var að auðvelda fólki að halda gæludýr óháð efnahag og búsetu.
Stefán telur hins vegar að samhliða breytingunum hefði verið rétt að skerpa á skráningar- og tryggingarskyldu hunda.
Hann telur að með auknu nábýli manna og hunda muni tilvikum þar sem hundar valda tjóni fjölga. Hann segir þegar vera vísbendingar um fjölgun hundabitsmála.
Tæplega 11 þúsund hundar í Reykjavík gætu verið óskráðir hjá borginni, miðað við mat Dýraþjónustu Reykjavíkur. Ljósmynd/Colourbox
Dýraþjónustan hafði þegar varað við
Dýraþjónusta Reykjavíkur hafði raunar þegar vakið athygli á þessum vanda áður en frumvarp Ingu var samþykkt.
Í umsögn Dýraþjónustunnar til Alþingis frá 15. október í fyrra var bent á hversu algengt væri að hundar væru óskráðir þrátt fyrir skráningarskyldu. Þar var jafnframt lögð áhersla á mikilvægi ábyrgðartrygginga.
Þjónustan kallaði eftir auknum heimildum sveitarfélaga til að bregðast við brotum og skýrari verkaskiptingu stjórnvalda í málum er varða hunda- og kattahald.
Þá var bent á að dauðsföll hefðu orðið af völdum hundabita í nágrannalöndunum á undanförnum árum og ekki væri ástæða til að ætla að Ísland myndi hafa þar sérstöðu um alla framtíð.
„Böðullinn getur ekki verið dómari“
Annað sem Stefán hefur áhyggjur af er hver muni taka ákvarðanir um aflífun hættulegra hunda eftir áramót, en heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna verða lagðar niður 1. janúar næstkomandi.
Samkvæmt gildandi samþykkt um hundahald í Reykjavík getur Dýraþjónusta Reykjavíkur krafist þess að hundur gangist undir skapgerðarmat ef ástæða er til að ætla að hann sé hættulegur eða hafi valdið líkamstjóni.
Leiði matið í ljós að hundurinn sé hættulegur getur Dýraþjónustan farið fram á að hann verði aflífaður. Verði umráðamaður ekki við kröfum þjónustunnar getur heilbrigðisnefnd tekið ákvörðun um skapgerðarmat eða aflífun.
„Böðullinn getur ekki verið dómari,“ segir Stefán um mikilvægi þess að annar aðili taki endanlega ákvörðun í slíkum málum.
Hann segir að eftir áramót gætu slík mál endað á borði íþrótta- og útilífsráðs Reykjavíkur, sem hann situr sjálfur í, enda heyri Dýraþjónustan undir ráðið.
Að hans mati er ráðið hins vegar alls ekki heppilegur aðili til að taka ákvarðanir um aflífun hunda.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði reglugerðarbreytingu 23. nóvember síðastliðinn. Samkvæmt henni bera sveitarfélög áfram ábyrgð á því að eigin samþykktum um gæludýrahald sé framfylgt.
Reglugerðin tekur gildi um áramót en þar er ekki sérstaklega kveðið á um hvaða nefndir innan sveitarfélaganna skuli taka ákvarðanir um aflífun hunda.
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur tók meðal annars ákvörðun um aflífun hundsins Bonzo í febrúar í fyrra eftir að hann hafði bitið manneskju illa. Eigandinn kærði ákvörðunina en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði kröfu hans um að hún yrði felld úr gildi.
Vill skoða sameiginlega dýraþjónustu
Stefán telur að ein leið til að bæta skráningu hunda hjá sveitarfélögum væri að tengja hana við örmerkingu dýranna hjá dýralæknum. Þá veltir hann því upp hvort ekki væri eðlilegra að halda utan um slíka skráningu á landsvísu.
Dýralæknum ber þegar að skrá örmerki hunda í miðlægan gagnagrunn, samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar. Sú skráning kemur hins vegar ekki í stað skráningar hunds hjá Reykjavíkurborg.
Stefán segir jafnframt að rætt hafi verið um að sameina dýraþjónustu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Dýrin virða enda ekki sveitarfélagamörk og ýmis verkefni, allt frá umönnun særðra dýra til meindýravarna, mætti að hans mati vinna sameiginlega.
„Borgin er að standa í mávaeyðingu en mávarnir fara svo og éta steikurnar af grillunum í Garðabæ líka,“ segir Stefán.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

