Íslendingur vann rúmar 38 milljónir í EuroJackpot

Íslendingur sem keypti miða á N1 á Ártúnshöfða í Reykjavík vann rúmar 38 milljónir króna í EuroJackpot.

Hann var einn sex miðahafa sem skiptu með sér öðrum vinningi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Af hinum fimm miðunum sem hlutu annan vinning voru fjórir keyptir í Þýskalandi og einn í Finnlandi.

Rúmir 1,3 milljarðar á miða keyptan á Spáni

Einn miðahafi var með fyrsta vinning og fær rúma 1,3 milljarða króna. Miðinn var keyptur á Spáni.

Ellefu miðahafar hlutu þriðja vinning og fær hver þeirra rúmar 11,7 milljónir króna. Fimm miðanna voru keyptir í Þýskalandi, þrír í Póllandi og einn í hverju landanna Lettlandi, Svíþjóð og Finnlandi.

Tveir fengu 125 þúsund krónur hvor í Jóker

Enginn hlaut fyrsta vinning í Jóker. Tveir miðahafar hlutu annan vinning og fá 125 þúsund krónur hvor. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó-appinu.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读