Boeing 747 þota Lufthansa lenti óvænt í Keflavík

Farþegaþota þýska flugfélagsins Lufthansa á leið frá Frankfurt í Þýskalandi til Miami í Flórída þurfti að breyta flugáætlun sinni og lenda á Keflavíkurflugvelli fyrr í dag.

Um er að ræða Boeing 747-8 breiðþotu.

Vélin lagði af stað frá Frankfurt klukkan 9:25 að íslenskum tíma í morgun en áætlaður flugtími til Miami var tíu klukkustundir og 25 mínútur.

Veikindi um borð 

Um þremur klukkustundum eftir flugtak, þegar vélin var í 32 þúsund feta hæð yfir Norður-Atlantshafi, höfðu flugmenn hennar samband við flugumferðarstjórn í Keflavík og óskuðu eftir lendingu.

Vélin lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli rúmum fjórum klukkustundum eftir flugtak frá Frankfurt. Vélin var í Keflavík í um tvo tíma áður en hún tók stefnuna til Miami að nýju. 

„Það voru veikindi um borð og flugstjóri tók ákvörðun um að fara á næsta flugvöll sem var hjá okkur að þessu sinni. Gera má ráð fyrir því að farþeganum hafi verið komið undir læknishendur,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia.  

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读