Tvær mögulegar skýringar á skjálftanum
Skjálftinn fannst bæði á Selfossi og í Hveragerði.
Jarðskjálftinn í Reykjadal í morgun gæti tengst jarðhitakerfinu á svæðinu eða flekaskilunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Jarðskjálftinn sem varð í Reykjadal í morgun gæti tengst jarðhitakerfinu á svæðinu eða stafað af spennulosun við flekaskil.
Þetta segir sérfræðingur á jarðskjálftavakt Veðurstofu Íslands í samtali við mbl.is.
Skjálftinn mældist 3,4 að stærð og varð klukkan 10.51 í morgun. Veðurstofunni hafa borist nokkrar tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist á Selfossi og í Hveragerði en engar um að hann hafi fundist á höfuðborgarsvæðinu.
Eftirskjálftavirkni hefur verið hverfandi það sem af er degi.
Spennan getur byggst upp árum saman
Sérfræðingurinn bendir á að upptök skjálftans séu á Suðurlandsbrotabeltinu og jafnframt á jarðhitasvæði. Jarðskjálftar séu algengir á slíkum svæðum.
Síðast varð skjálfti af sambærilegri stærð á þessum stað í október árið 2021 en sá mældist 3,3 að stærð.
Sérfræðingurinn segir að tekið geti nokkur ár fyrir spennu að byggjast upp við flekaskilin. Hugsanlegt sé að nú hafi losnað um spennu sem byggst hefur upp frá árinu 2021.
Ekki sé þó hægt að segja til um nákvæma orsök skjálftans.
Ekkert sé óeðlilegt við virknina þótt ekki sé algengt að skjálftar af þessari stærð verði á þessum tiltekna stað.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗